Fréttir

| Sunnudaginn 13. júní kl. 09.32 |

Kristín Birna búin ađ ná b-lágmarki inn á EM í frjálsum

Kristín Birna búin ađ ná b-lágmarki inn á EM í frjálsum

ÍR-ingurinn Kristín Birna Ólafsdóttir bætti sig í 400 metra grindarhlaupi og náði B-lágmarki á Evrópumeistaramótið í Barcelona í sumar. Hún er þar með fyrsti íslendingurinn sem er kominn með lágmark á EM í frjálsum.


Kristín Birna Ólafsdóttir hljóp á 58.31 sekúndum sem er bæting á hennar besta árangri sem var 58.82 sekúndur frá árinu 2008. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍR-inga.
 
Hlaupið fór fram á sterku móti í Hollandi og varð Kristín Birna fjórða í hlaupinu sem vannst á 57.73 sekúndum. Kristín Birna er samt enn í fjórða sæti á íslenskri afrekaskrá í 400m grindahlaupi en afrekskonurnar Guðrún Arnardóttir, Helga Halldórsdóttir og Silja Úlfarsdóttir hafa hlaupið hraðar.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að Jón Halldórsson var fyrsti íslendingurinn til að keppa á ÓL en hann keppti í 100m hlaupi í Stokkhólmi 1912.