Fréttir

| Þriðjudaginn 25. maí kl. 15.24 |

Ásdís Hjálms, Óđinn Björn og fleiri snilldar frjálsíţróttamenn og konur keppa í kvöld á Laugardalsvelli

- Innsend grein frá Frey Ólafssyni Ásdís Hjálms,  Óđinn Björn og fleiri snilldar frjálsíţróttamenn og konur keppa í kvöld á Laugardalsvelli

 
Í kvöld klukkan 18:00 hefst JJ-mót Ármanns. JJ-mótið er eitt fyrst vormót frjálsíþróttamanna þetta vorið. Frjálsíþróttamenn eru nú margir spenntir að finna út hvernig þeir koma undan vetri.


Hápunktur mótsins má ætla að verði um klukkan 19:00 þegar stíga á stokk tveir af öflugustu kösturum landsins, Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni og Óðinn Björn Þorsteinsson, kúluvarpari úr FH. Þau munu í kvöld fyrst og fremst keppa við eigin met enda yfirburðarfólk í sínum greinum. Ásdís Hjálmsdóttir setti Íslandsmet sitt í spjótkasti á sama móti fyrir ári en þetta er eitt af fáum mótum á Íslandi sem Ásdís keppir á í sumar.
 
Auk þessara tveggja greina er vert að benda á einvígi Guðmundar Hólmars Jónssonar Ármanni og Arnar Davíðssonar FH í spjótkasti. Þeir bættu sig báðir mikið í fyrra og köstuðu yfir 70 metra.
Þá má segja að eftirvænting sé eftir keppni í öllum hlaupagreinum dagsins. Í mörgum greinum verður barist um landsliðssæti í kvöld. Sjá dagskrá mótsins hér.
 
 

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að FRÍ var stofnað 16 ágúst 1947