Fréttir
| Föstudaginn 21. maí kl. 21.57 |
Góđur árangur hjá Ragnheiđi Önnu í kringluasti
Ragnheiður Anna Þórsdóttir úr FH sendi kringluna 49,48 m á kastmóti Í Kaplakrika, laugardaginn 15. maí sl. Þetta er hennar besti árangur í kringlukasti síðan 2006.
Sínum besta árangri náði Ragnheiður árið 2006, þegar hún náði 50,18 m kasti sem var bæði stúlknamet og met í undir 20 ára flokki kvenna.
Þessi árangur Ragnheiðar á laugardaginn er fjórði besti árangur Íslendings frá upphafi í greininni. Aðeins Guðrún Ingólfsdóttir sem á metið 54,45 m sett árið 1985, á betri árangur frá upphafi en Ragnheiður, sbr. afrekaskrá FRÍ. Halla Heimisdóttir úr Ármanni á síðan 49,50 m sem er 3. besti árangur frá upphafi í kringlukasti kvenna. Afrekaskrá FRÍ kvenna í kringlukasti má sjá hér.
Góður árangur varð í öðrum greinum á mótinu líka. Sandra Pétursdóttir úr ÍR kastaði sleggjunni 50,52 m. Íslandsmet hennar frá því í fyrra er 54,19 m.
Hilmar Jónsson úr FH sendi sleggjuna 43,27 m, en hann keppir í flokki pilta 13-14 ára. Önnur úrslit á mótinu 15. maí sl., má sjá á mótaforriti FRÍ hér.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að ef hnéð á þér er aumt þar sem skelin mætir leggnum gæti það verið vísbending á vítamín-og steinefnaskort..