Fréttir
| Föstudaginn 21. maí kl. 22.10 |
Góđur árangur hjá Óđni í Halle
Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarpari úr FH náði ágætis árangri á miklu kastmóti í Halle í Þýskalandi sem fram fór um síðustu helgi. Hann náði kasti upp á 18,78 m og varð í 8. sæti.
Óðinn 8. sæti af 19 keppendum í Halle með kast uppá 18,78 m í 6. tilraun, en í næstu umferð á eftir varpaði hann kúlunni 18,51 m. Aðeins föðurbróðir hans, Óskar Jakobsson, Hreinn Halldórsson og Pétur Guðmundsson núverandi methafi eiga lengri köst en þetta, en best á Óðinni 19,24 m.
Mikil rigning var á meðan mótinu í Halle stóð sem hefur haft áhrif á árangurinn. En úrslit mótsins í Halle má sjá hér.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.