Fréttir
| Þriðjudaginn 18. maí kl. 17.03 |
Pac-10 meistaramótiđ
-Kári Steinn bloggar
Eitt snöggt blogg um hvernig gekk í dag. Hljóp taktískt 10km hlaup eins og við mátti búast á Pac-10 meistaramótinu sem fer fram hér í Berkeley. Hlaupið fór rólega af stað, ca 2:55 gegnum fyrsta km og síðan dó tempóið strax svolítið út. 8:55 í gegnum 3k, ca. 15:00 í gegnum 5k og 20:55 gegnum 7k. Síðan byrjaði hlaupið fyrir alvöru og ég náði að kreista út ca 8:35 síðustu 3km og lokatíminn 29:31 (3 sek frá mínum besta tíma) og 7. sæti og 2 stig fyrir liðið.
Ágætis hlaup. Leið mjög vel fyrstu 5km og fannst þetta algjört jogg. Var hins vegar alls ekki nógu harður síðustu 3km og átti nóg eftir á síðasta hring. En þetta var allavega góð æfing og fínt að fá eitt 10km hlaup í reynslubankann svona til að slípa sig aðeins til.
Næst á dagskrá eru 10km í Austin, Texas eftir 2 vikur. Verður örugglega skemmtileg heitt og mikill raki þar þannig að ég býst við erfiðu og taktísku hlaupi en það verður bara gaman að takast á við það. Segi þetta gott í bili.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að ef hnéð á þér er aumt þar sem skelin mætir leggnum gæti það verið vísbending á vítamín-og steinefnaskort..