Fréttir
| Þriðjudaginn 18. maí kl. 17.13 |
Lime lax
Þessar grilluðu laxasneiðar eru sumarlegur réttur og alveg hreint yndislegar með til dæmis góðu klettasalati.
Við byrjum á því að gera marineringu fyrir laxinn en í hana þarf eftirfarandi:
1 lime
3 hvítlauksgeirar
1 rauður chili
1 msk akasíuhunang
1 msk ólívuolía
Salt og pipar
Rífið börkinn af lime-ávextinum og pressið safann. Pressið hvítlaukinn. Hreinsið innan úr chilibelginum og saxið hann fínt. Blandið öllu saman í skál og marinerið laxasneiðar í klukkustund.
Grillið í nokkrar mínútur á 3-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til fiskurinn hefur náð þeirri eldun sem þið sækist eftir.
Skerið niður lime í þunnar sneiðar, dýfið aðeins upp úr marineringunni og grillið með fiskinum.
Með þessu þarf ferskt og sýrumikið hvítvín t.d. Sauvignon Blanc frá Nýja heiminum á borð við Saint Clair Vicars Choice.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að Sigurður Sigurðsson komst fyrstur Íslendinga í úrslitakeppni í frjálsíþróttum á ÓL 1936 í Berlín, en hann keppti í þrístökki.