Fréttir

| Þriðjudaginn 18. maí kl. 16.58 |

5000m á Brutus Hamilton

-Kári Steinn bloggar 5000m á Brutus Hamilton

Jæja, kominn tími til að hressa aðeins upp á þetta blogg. Hef lítið verið að gefa mér tíma í þetta blogg enda tók ég út smá stresskast í skólanum og mikið að gera í hlaupnum. Núna er hins vegar allt farið að róast aðeins aftur fyrir komandi lokaátök.


Síðasta skólavikan er að detta inn og síðan tekur við viku upplestrarfrí, lokaverkefni og próf og svo hviss, bamm, búmm og búinn í skólanum 13. maí. Styttist heldur betur í þetta! Eftir að ég er búinn í skólanum tekur við hangs of æfingar býst ég við. Ég er reyndar að vonast eftir að geta byrjað að vinna í verkefni sem ég verð að vinna við heima í sumar svo maður geri nú eitthvað annað en að liggja í leti og æfa þess á milli.
 
 
Annars er alveg óhætt að segja að ég sé kominn með nóg af því að læra og mæta í skólann í bili og alveg til í að detta í sumarfrí.
 
Keppnisdagskráin lítur þannig út að ég keppi í 10.000m 14. maí í Berkeley og svo annað hvort í 5.000m eða 10.000m í Austin, Texas, síðustu helgina í maí. Eftir það mót er mér annað hvort frjálst að koma heima eða þá að ég fari til Eugene í kringum 10. júní og keppi á einu móti þar til viðbótar.
 
Síðasta föstudag hljóp ég einstaklega dapurt 5.000m hlaup á heimavelli. Það átti allt að smella saman og æfingar höfðu gengið rosalega vel. Ég var í sterkum riðli svo ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af taktísku hlaupi (allir atvinnumenn í hlaupinu nema 3). En allt kom fyrir ekki, byrjaði þokkalega í hlaupinu en leið samt ekki vel á þeim hraða og var hræddur um í hvað stefndi. Ég missti síðan stærsta hópinn frá mér, missti allan hraða og í leiðinni allan metnað þar sem ég sá að ég var ekki að fara bæta mig og hálfpartinn labbaði í mark á lítið glæsilegum 14 mín og 19 sek. Veðrið var heldur ekki mikið að hjálpa til, 9 gráður og rok. Ekki beint kalifornía aðstæður enda mistök fannst mér að hafa hlaupið klukkan 10 að kvöldi til.
 
En svona er þetta víst. Það koma slæmir dagara inn á milli og víst lítið við því að gera annað en að brosa og halda áfram að vera jákvæður og æfa vel.
 
Splittin voru einhvern veginn svona:
1:41.53 1:06.76 1:06.03 1:06.20 1:06.95 1:07.32 1:08.98 1:10.87 1:11.93 1:11.21 1:13.85
 
Og úrsltin svona:
 
Finals
1 Galen Rupp Unattached 13:32.53
2 Juan Carlos Romero Nike German Silva 13:34.27
3 Kensuke Takezawa S&B 13:47.30
4 Jordan Horn McMillan Elite 13:50.03
5 Yufu Ikuto Komazawa University 13:54.15
6 Josh Moen Team USA MN/Strands 13:57.49
7 Jake Schmitt Washington 13:59.26
8 Robin Watson Speed River TFC 14:06.84
9 Yasunori Murakami Fujitsu_TF 14:07.59
10 Amado Garcia Guatemala 14:13.19
11 Masato Kihara Kanebo 14:15.99
12 Kari Karlsson California 14:19.21
13 Chris Chavez TRANSPORTS Adidas 14:21.32
14 Alfredo Arevalo Guatemala 14:21.64
15 Max O'Donoghue-McDonald Washington 14:21.73
16 Erick Perez MEXICO 14:29.18
-- Patrick Smyth NIKE DNF
-- Haron Lagat New York Roa DNF
-- Bolota Asmerom Saucony/ Bay DNF
 
 
Segi þetta gott í bili.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að ferskur sterkur pipar eykur brennsluna svo um munar