Fréttir
| Þriðjudaginn 18. maí kl. 16.54 |
10 km ćfingar
-Kári Steinn bloggar
Trúi ekki að það sé komið svona langt síðan ég bloggaði síðast. Tíminn farinn að fljúga áfram enda nóg að gera. Kennslu á þessari önn er lokuð, upplestrarfríið var að klárast og prófatímabilið hefst á mánudaginn. Það eru sem betur fer enginn svaka læti í prófavikunni hjá mér þetta skiptið en ég fer í tvö próf og klára þann 13. maí. Ekki nema örfáir dagar í sumarfríið.
Hvað æfingar varðar að þá er ég búinn að kúpla mig alveg yfir í 10km gírinn og hafa æfingar gengið mjög vel. Dæmi um tvær æfingar sem ég hef tekið síðastliðnar tvær vikur:
1. 10km simulation (hratt 69-70s á hring, hægar 85-88s á hring): 1600 hratt - 1600 hægar - 1600 hratt - 1600 hægar - 800 hratt - 800 hægar - 400 hratt - 400 hægar - 400 hratt - 400 hægar - 400 sprettur = 10 km á 30:57
2. 10km simulation (hratt 69-70s á hring, hægar 85-88s á hring): 4x(1600 hratt - 800 hægar) - 400 sprettur = 10 km á 30:33
Einhvern tímann hefði ég verið sáttur við þessa tíma í keppni en þetta gefur allavega vísbendingu um að formið sé gott. Farinn að hlakka mikið til að reima á mig gaddana aftur og keyra vel á það í keppni eftir þessar æfingar.
Næsta hlaup er sem sagt 10km á heimavelli næsta laugardag. Ég hendi inn bloggi þegar nær dregur.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að Jón Halldórsson var fyrsti íslendingurinn til að keppa á ÓL en hann keppti í 100m hlaupi í Stokkhólmi 1912.