Fréttir

| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.33 |

Tveggja daga blogg

-Helga Margrét og Guđrún Gróa blogga Tveggja daga blogg

Nú ætla ég að láta gamminn geisa um allt og ekki neitt næstu 10 mínúturnar eða þangað til klukkan slær 12 og þessi dagur syngur sitt síðasta. Mjög undarlegt ástand hér, og þreytt til að ná nokkru samhengi í annars mjög svo áhugaverðri lesningu um hljóðkerfi en samt of mikið axsjón í gangi í hausnum á mér til þess að far að sofa. Er þá nokkuð betra en að skjóta inn eins og einu litlu bloggi.
Það sem náttúrulega allra helst er að rétt í þessu, vorum við að vinna annan leikinn í undanúrslita rimmunni við Hauka og erum því komnar með tvo sigra á móti engum. Næsti leikur er svo á föstudaginn í DHL-höllinni. Ég treysti því náttúrulega að engin KR-ingur láti sig vanta þangað. Nema náttúrulega hún Helga sem ætlar að sting af til útlanda núna á hábjargræðistíma. Ég bara veit ekki hvað það á að fyrirstilla ???
 
 


Það sem náttúrulega allra helst er að rétt í þessu, vorum við að vinna annan leikinn í undanúrslita rimmunni við Hauka og erum því komnar með tvo sigra á móti engum. Næsti leikur er svo á föstudaginn í DHL-höllinni. Ég treysti því náttúrulega að engin KR-ingur láti sig vanta þangað. Nema náttúrulega hún Helga sem ætlar að sting af til útlanda núna á hábjargræðistíma. Ég bara veit ekki hvað það á að fyrirstilla ???

En svona fyrir utan körfuboltann er allt meinhægt. Skólinn gengur sinn vanagang.  Ég veit samt ekki alveg hvort það boði gott að vera farin að sýna einkenni yfirlesturs eftir 2ja og hálfs mánaðar nám og það í kúrsum sem er ekki einu sinni mjög mikil lesning. Þetta hlýtur að stafa af litlu lestrar þoli efitr síðastliðið ár þar sem ég las aðallega uppskriftir, stöku ljóð fyrir gamla fólkið og svo auðvitað bloggið hans Eiðs http://blog.eyjan.is/esg/ eitthvað sem enginn sem unnir íslenskri tungu má láta fram hjá sér fara ;) Einkennin koma fram í tíma og ótíma. Um daginn var ég að vinna við ritgerð og var að hlusta á tónlist. Hrekk skyndilega við þegar Helga spyr mig hvað ség eiginlega að gera. Þá hafði ég í nokkrar mínútur bara slegið á einn takka í takkt við tónlistina þannig að setningin sem ég var að skrifa leit eitthvernvegin svona út jjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj nokkuð gott af ekki langskólagengnari manneskju en mér ;) Svo er ég farin að eiga í miklum vændræðum með haga mér á almannafæri. Við helga gerðum okkur dagamun eitthvert föstudagskvöldið og fórum út að borða. Það endaði ekki betur en svo að ég frussaði matun yfir allt borðið. Þakka guði fyrir að það var varla sála inn á staðnum. Ég get ómögulega rakið þessa undarlegu hegðun til nokkurs annars en til lestursins. Þannig að gangið hægt um háskólansdyr.


Ég held að það hljóti að vera að Helgu finnist ég orðin ofboslega gömul eða þá komin með mjög snemmbúin aldsæmer. Hún er alltaf að reyna að sannfæra mig um að ég hafi sagt eitthvað eða gert sem ég veit alveg upp á mína 10 fingur að ég gerði ekki. Heldur því svo fram að ég muni það ekki. Bíð eftir því að hún reyni að halda því fram að ég hafi gefið henni öll fötin mín, tölvuna og i-podinn. Svon vaða þessi yngstu börn uppi.

Helga súperstar heldur áfram að gera það gott í fjölmiðlunum. Var í kastljósinu um daginn og kom svona líka vel fram að útvarpstjóri hætti snarlega við að leggja niður þulustarfið heldur réð Helgu á staðnum. Þau ykkar sem misstuð af þessu tímamótaviðtali getið séð það hér http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472146/2010/03/12/
Nú er ég heldur betur kominn yfir tímamörkin, enda svo sem ekki fræðilegur að ég gæti komið nokkru frá mér á 10 mínútum. Þetta blogg var sem sagt skrifað á tveim dögum ;) Held það sé aðeins farið að róast í heilasellu partýinu svo ég ætti að geta farið að koma mér í háttinn.

Munið bara að taka föstdaginn frá. KR-burger og frábær körfubolti, það gerist ekki betra :D

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að sársaukafullur krampi í fótlegg merkir að kalkstaðan sé lág.  Þig gæti líka skort magnesíum, þar sem þess er þörf til að kalkið nýtist beinum...