Fréttir

| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.50 |

Tucson, Arizona

-Kári Steinn bloggar Tucson, Arizona

Þá er utanhústímabilið komið vel af stað. Ég keppti í 1500m í Tucson, Arizona á laugardaginn og ég er ekki frá því að það hafi verið mesta ógeðishlaup sem ég hef hlaupið á mínum ferli. Ferðin í heild sinni var þó mjög góð og skemmtileg en hlaupið tók vel á.


Tucson er sem sagt í miðri eyðimörk í Arizona og er í nokkuð góðri hæð yfir sjávarmáli og mér fannst ég finna vel fyrir því. Sól og 30 gráður og hrikalega þurrt loft! En eins og í síðasta 1500m hlaup og reyndar öllum mínum hlaupum á þessu ári, þá fór hlaupið frekar hægt á stað. Mér leið vel framan af og fannst hlaupið nokkuð létt en svo þegar kom að síðasta hring að þá var lítið bensín á tankinum og ég stífnaði upp síðustu 100 metrana. Ekki sáttur með það hvernig mér leið en engu að síður góð æfing og góð reynsla.
 
Eftir hlaupið þurfti ég svo góðan hálftíma til að jafna mig í önduninni og ég er ennþá að jafna mig í hálsinum og af smá sólbruna. Það var því ekki skemmtilegt að taka tempóæfingu strax eftir hlaupið en þetta er ekki alltaf spurning um að hafa gaman.
 
Splittin voru nokkurn veginn svona: 61 (400m) - 2:05 (800m) - 2:52 (1100m) - 3:08 (1200m) - 3:50,70 (1500m).
Nánast nákvæmlega sömu splitt og í síðasta 1500m hlaupi en í þetta skiptið leið mér hræðilega eftir hlaupið en síðast þegar ég hljóp 1500 blés ég varla úr nös.
 
Restin af ferðinni var annars mjög skemmtileg og það var gaman að sjá hvernig þessi eyðimerkurstemmning er. Kaktusar, skröltormar, heitt og þurrt loft og önnur huggulegheit. Nokkuð ljóst að ég kem ekki til með að flytja til Tucson í framtíðinni.
 
Ég kom svo aftur til Berkeley á páskadag og átti hálf dapran dag með sjálfum mér en ég passaði mig á því að kaupa nóg af súkkulaði þannig að það bjargaði deginum.
 
Næsta mót er svo um næstu helgi í Berkeley. Það er hin árlega keppni á milli Stanford og Berkeley og eins og síðustu tvö ár hleyp ég 3000m og það má búast við taktísku hlaupi eins og alltaf. Síðustu tvö ár hef ég hlaupið á 8:16 og 8:18 minnir mig en ég ætla að sjá hvort ég geti ekki fengið einhvern með mér í að keyra upp hraðann í þessu hlaupi í ár. Löngu kominn tími á að bæta sig í 3000m.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.