Fréttir

| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.41 |

Huggulegheit síđustu daga

-Kári Steinn bloggar Huggulegheit síđustu daga

Spring break er búið að vera alveg frábært hingað til. Ég og Óli erum búnir að hafa það huggulegt og alveg þrælgott í 20-25 stiga hita og sól síðustu daga. Virkilega gott að vera laus við skóla í svolítinn tíma.


Við erum búnir að taka skoðunarferðir hér og þar, skella okkur til San Francisco og gera ýmislegt skemmtilegt. Í gærkvöldi fórum við á hörku NBA leik þar sem Pheonix Suns marði heimaliðið Golden State Warriors 133-131. Alltaf jafn gaman af þessu NBA leikjum. Dagurinn í dag var svo bara tekinn í leti fyrir utan hörkuæfingu sem ég tók.
 
Æfingarnar eru búnar að vera mjög stífar undanfarið og nánast að gera út af við mig en þær hafa engu að síður gengið mjög vel og núna fæ ég tvo langþráða hvíldardaga áður en ég keppi í 5.000m á föstudaginn. Þetta á víst bara að vera upphitunarmót fyrir mig og ég er að æfa vel í gegnum þetta mót en ég held engu að síður að ég eigi að geta hlaupið hratt og bætt mig vel miðað við hvernig æfingar hafa gengið undanfarið. Sjálfstraustið er allavega gott og ég get ekki beðið eftir að keppa.
 
Ég kem til með að henda inn fréttum af hlaupinu á aðfaranótt laugardags, segi þetta gott í bili.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • að Íris Grönfeldt var fyrst Íslenskra kvenna að kasta yfir 40m -50m- og svo 60 metrana