Fréttir
| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.48 |
Blogg ađ utan
-Helga Margrét og Guđrún Gróa blogga
Ég stend við stóru orðin og kem með eitt stykki lauflétt blogg héðan frá Tenerife.
Hér á Tenerife er veðrið ekkert til að hrópa húrra fyrir, fimm gráður á celcíus og norðan garri. Ekki hefur enn sést til sólar, en við bindum miklar vonir við að hún láti sjá sig seinna í dag. Við fáum ekkert gott að borða og morgunmaturinn sæmir varla svínum. Völlurinn og öll aðstaða í kringum æfingarnar er ekki ósvipuð Baldurshaganum á meðan hann hét og var......jæja Gógó, ertu ánægð núna? :P
Nei sem betur fer er þetta ekki svona, og í rauninni er þessu öllu alveg öfugt farið. Hér skín sólin glatt og hitinn gælir við 30°C, og það dag eftir dag. Hótelið og maturinn er tipp topp og ég var akkúrat að koma úr morgunmat þar sem ég sporðrenndi múslí með fullt af rúsínum, melónu og eggjahvítu. Gerist ekki mikið betra. Völlurinn er flottur og æfingar ganga vel. Æfingabúðirnar eru sumsé búnar að vera ansi hreint góðar hingað til og vonandi verður engin breyting á því.
Eitt veldur mér þó svolitlu hugarangri en það er sjúkdómsgreiningin sem ég hef hlotið af lyfjafræðingi ferðarinnar. Ásdís telur nefnilega nokkuð augljóst að ég sé haldin þeim skelfilega og bráðdrepandi sjúkdómi tanorexíu! :s Ég veit ekki alveg með þessa sjúkdómsgreiningu samt. Jú vissulega vil ég mikið liggja í sólinni og tana sem mest, en í rauninni þá tana ég bara ekki rassgat í bala heldur verð ég bara rauð og roðin. Í mínu tilviki ætti sjúkdómurinn því frekar að bera nafnið redorexía, roðarexía eða rjóðurexía. En eins og þið takið kannski eftir þá nefni ég ekki brunarexía, því ég stend mjög fast á því að ég sé ekki brunninn, þetta er allt spurning um hugarfar og því er ég bara rjóð og roðinn mun innan skamms vonandi breytast í fagurbrúnan húðlit :P En núna er ég búin að ligga í sólbaði fimm daga í röð og ætla því að hvíla mig frá sólinni í dag.
Hér á Tenerife er töluvert mikið af mishressu gömlum ellismellum. Það er mjög greinilegt að lífið getur farið svolítið misjafnlega í fólk. T.d. eru tveir gamlir karlar hérna á hótelinu alveg rosalega hressir. Þeir halda uppi stuðinu í borðtenniskeppnum í sundlaugagarðinum og þegar ég og Ásdís tókum sundlaugaræfingu um daginn vildu þeir endilega taka þátt líka, en gáfust þó fljótt upp blessaðir. En svo erum við líka með andstæðurnar og oftar en ekki eru það gömlu kerlingarnar sem bara geta ekki hamið í sér skapið. Alveg merkilegt hvað það er hægt að tuða mikið yfir því að smá sandur og sjór slettist á mann við það að nokkrir krakkar spretti framhjá þeim á ströndinni. Ég skil ekki alveg hvað þær eru að vilja í sundbolnum niður á strönd ef þær geta ekki þolað smá sand og sjó =o Eitt hef ég allaveganna lært, ég ætla frekar að vera svona hresst og skemmtilegt gamalmenni eins og spaðarnir í sundlaugagarðinum en ekki svona fúl og grömpí eins og gömlu konurnar í sundbolunum með rúllurnar í hárinu :P
En þangað til ég verð hresst gamalmenni ætla ég nú bara að einbeita mér að því að vera hress táningur. Þetta snýst allt um núið ekki satt?
En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili. Sýnist sólin vera að koma upp og æfing eftir spjótkastæfing eftir hálftíma. Svo er bara að sjá hvort að það verði jafn mikill hasar á þessari kastæfingu og þeirri síðustu :P
Ætla að enda þetta blogg á því að hvetja vinkonur mínar í KR til dáða. Gangi ykkur allt í haginn í kvöld, takið eina sókn í einu, eina vörn í einu, einn leik í einu og takið í leiðinni eitt skref í einu í átt að markmiðinu.
!!!KOMA SVO - ÁFRAM MEÐ SMJÖRIÐ - SETJA SMÁ KÆFU Í ÞETTA!!!