Fréttir

| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.52 |

Big Meet

-Kári Steinn bloggar Big Meet

Ég var rétt í þessu að klára að hlaupa 3.000m á Big Meet sem er keppni á milli Stanford og Berkeley. Langt frá því að vera frábært hlaup en ég náði engu að síður að kreista út litla bætingu en ég hljóp á 8:10,29 (átti 8:16 best úti en 8:10,97 best inni).


Við fengum liðsfélaga okkar til að setja upp góðan hraða fyrstu míluna en það var ansi hvasst og því erfitt að halda þeim hraða og hlaupa afslappað. Fyrsta mílan var nokkuð góð samt en síðan fór hlaupið að þyngjast hratt. Ég dó svolítið í restina og missti nokkra Stanford gæja fram úr mér. Ekki sáttur með þetta hlaup en bæting er alltaf bæting sama hversu lítil hún er.
 
Við töpuðum líka stigakeppninni karlameginn en stelpunum tókst að knýja fram sigur á Stanford í síðustu grein sem var smá sárabót. Það var skemmtileg stemmning á þessu móti en veðrið hefði mátt vera aðeins vænlegra til árangurs. Ég fékk líka íslenska hvatningu af pöllunum sem ég var mjög ánægður með.
 
En þá eru 5.000m næst á dagskrá eftir 2 vikur á heimavelli. Hlakka mikið til, það er hlaup sem ég kem til með að stíla mikið á og vonandi að allt smelli saman á næstu vikum.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að heilsusamlegt mataræði getur bætt líðan þína og útlit til muna