Fréttir

| Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.45 |

Aaaaalveg ađ koma!

-Kári Steinn bloggar Aaaaalveg ađ koma!

Þessar þrettán mínútur ætla að láta að bíða aðeins eftir sér en nálægt var það. Það er þó allavega óhætt að segja að þetta hafi verið betri byrjun á keppnistímabilinu en í fyrra. Ég hljóp sem sagt 5000m á Stanford Invitational í gær til að opna tímabilið hjá mér af alvöru. Ég hljópa kílómetrana 5 á 14:01,99 en í fyrra á sama móti hljóp ég 14:29 þannig að þetta er bara mjög jákvætt, nóg inni í bankanum.


Mér leið bara mjög vel í hlaupinu sem fór ansi hægt af stað og í raun drap niður möguleika á að brjóta 14mín múrinn strax á fyrstu 2 hringjunum. Splittin voru eftirfarandi:
 
2:55 - 2:50 (5:45) - 2:48 (8:33) - 2:48 (11:21) - 2:40 (14:01).
 
Ekki sniðugt að byrja á að hlaupa 2:55 fyrsta kílómetra en svona var það víst en þetta var engu að síður góð æfing og flott byrjun. Held að það séu 3 vikur í næsta 5km hlaup og vonandi að hlaupið fari hraðar af stað og að maður verði kominn í góðan gír þá.
 
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég er víst á leið í eitthvað partý. Kem með blogg í vikunni!

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.