Fréttir

| Miðvikudaginn 03. mars kl. 11.31 |

Grćnmeti í grćnu karrímauki og kókossósu

Grćnmeti í grćnu karrímauki og kókossósu

Bragðgóð, ódýr og góð máltíð, mitt á milli súpu og grænmetis með sósu. Maður getur notað alls kyns grænmeti sem maður á ísskápnum (upplagt með haustinu þegar við erum að pota upp okkar eigin grænmeti) og svo getur maður notað núðlur til að drýgja matinn eða soðið hýðishrísgrjón/bygg með.


Ég kaupi alltaf lífrænt framleitt grænt karrímauk úr heilsudeildum matvörubúða (eða úr heilsubúð). Maður getur gert sitt eigið sjálfur en svona getur maður sparað sér tíma. Þessi lífrænt framleiddu eru líka bara ansi bragðgóð. Athugið að karrímauk getur innihaldið rækjumauk og ef þið eruð jurtaætur (vegan) mynduð þið þurfa að velja karrímauk án rækjumauks. Athugið að magn karrímauks í uppskriftinni fer eftir styrkleika þess, prófið ykkur bara áfram.
 
Grænmeti í grænu karrímauki og kókossósu
Fyrir 2-3
 
* 1 sæt kartafla, afhýdd og söxuð í meðalstóra bita
* 1 laukur, saxaður frekar smátt
* 1/2 rauð paprika, sneidd í grófa strimla
* 4 portabello sveppir, saxaðir í meðalstóra bita
* 6 þurrkuð kaffir lime blöð (má sleppa)
* 400 ml kókosmjólk
* 250 ml vatn
* 1 gerlaus grænmetisteningur
* 2-5 msk grænt karrímauk. Magn fer eftir styrkleika karrísins sem og smekk ykkar
* 2 tsk agavesíróp
* 1 tsk kókosfeiti
* 2 msk límónusafi
* Rifinn börkur af einni límónu
 
Aðferð:
* Hitið kókosfeitina í stórum potti.
* Bætið lauknum saman við ásamt karrímaukinu. Byrjið á 2 msk því sum karrímauk eru mjög sterk.
* Bætið vatninu ásamt grænmetisteningnum út í.
* Bætið sveppunum og paprikunni við og hitið í 5 mínútur eða þangað til grænmetið fer að linast.
* Hrærið vel í þessu til að grænmetisteningurinn leysist upp.
* Hellið kókosmjólkinni út í og lækkið hitann. Látið malla í 5 mínútur.
* Bætið lime blöðunum út í ásamt sætu kartöflunni, látið malla í 10 mínútur eða þangað til kartöflubitarnir eru orðnir mjúkir.
* Bætið agavesírópinu, límónusafanum og berkinum út í.
* Smakkið til með meira karrímauki.
* Hitið vel og berið fram.
* Berið fram með hýðishrísgrjónum eða byggi.
 
* Einnig er gott að sjóða t.d. hrísgrjóna- eða sobanúðlur (úr bókhveiti) og setja út í.
* Setjið þær þá út í allra síðast, rétt áður en maturinn er borinn fram.
* Í staðinn fyrir portabello sveppi má nota aðra stóra sveppi.
* Í staðinn fyrir sveppi má nota eggaldin (enska: eggplant).
* Ef afgangur er af kókosmjólkinni má frysta hana í ísmolabox og nota síðar, t.d. í svona súpur.
 
 

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.