Fréttir

| Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 10.58 | - Kári Steinn bloggar

San Fran síđustu helgi

San Fran síđustu helgi

Jæja, kominn tími til að svara fréttaþorsta hinna fjölmörgu lesenda þessa bloggs. Mér þætti gaman að vita hvort það væru fleiri en Stebbi og Tobbi sem eru að lesa þessa vitleysu í mér.
 


En allavega, átti mjög góða helgi. Þægileg helgi æfingalega séð, létt á föstudag og sunnudag og tveggja tíma túr á laugardag. Ég skellti mér til San Francisco eftir langa túrinn á laugardaginn og fór í góðan göngutúr. Ég leigði síðan hjól og hjólaði yfir Golden Gate brúnna og niður í mjög skemmtilegan bæ sem heitir Sausalito og þaðan var tekin ferja aftur til San Francisco. Mjög góður dagur.
 
Skólinn er ekkert farinn að taka neitt rosalega í ennþá. Nóg af verkefnum sem þarf að skila inn þó en svo lengi sem það er ekki verið að henda í mann prófum eða einhverjum risaverkefnum að þá er ég bara nokkuð sáttur. Ég er yfirleitt bara í tveimur tímum á dag þannig að það er nægur tími til að skipuleggja daginn og æfa vel.
 
Æfingarnar halda áfram að ganga mjög vel. Ég er byrjaður að taka svokallaða tvöfalda daga einu sinni í viku sem mér finnst vera að gera góða hluti fyrir mig. Þessir tvöföldu dagar eru sem sagt þannig að ég tek æfingu um morguninn á 5-10km hraða á hlaupabretti (t.d. 6x1000m). Síðan hvíli ég í 4-6 klukkutíma og er síðan mættur aftur á brautina til þess að taka stutta æfingu á 1500m hraða (yfirleitt 400-600m sprettir og heildarmagn kringum 2500-3000m).
 
Síðan var að bætast við hlaup hjá mér en þjálfarinn vill að ég hlaupi 5000m eftir 2 vikur, þ.e. 13. febrúar. Ég er meira en til í það og hlakka mikið til að fá að spreyta mig. Stefnan er því tekin á að taka tvö 5000m hlaup á þessu innanhústímabili allavega svona til að byrja með. Ég fékk reyndar aðeins í hásinina á æfingu í dag og vona að það sé bara eitthvað sem kemur og fer.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • að óhollt mataræði eykur hættuna á þunglyndi og skapsveiflum.