Fréttir
| Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11.05 |
-Ásdís Hjálms bloggar
Hvađ er ađ gerast hér....
Heyriði nú mig, endurlífgunartilraunirnar virðast eitthvað vera að skila árangri! Tvö blogg á þrem vikum er allavega meira en hægt var að segja í langan tíma á undan þó það teljist nú seint eitthvað afrek. Foot in mouth
En svona svo maður komi nú með smá fréttir hérna inn þá er ég að fara að keppa á Reykjavík International Games á morgun í kúlu. Það er bein útsending frá sjónvarpinu á milli 13 og 15 en auðvitað eiga bara sem flestir að skella sér í höllina. Ég keppi svo í kúlunni um 13:30 og ég verð nú að viðurkenna það að það er ekki laust við að ég sé orðin svolítið spennt. Æfingarnar eru búnar að ganga mjög vel í kúlunni í vetur og ég er í bætingarformi en svo þurfti ég að seiga alveg hrikalega lélegar síðustu tvær æfingar fyrir mótið. Það var nú samt bara svona til að setja smá spennu í þetta og halda mér á tánum...þetta má ekki vera of auðvelt! Wink Það verður því fróðlegt að sjá hvað gerist á morgun!
Skólinn er að komast á fullt skrið aftur og þessa önnina verð ég í Lyfjafaraldsfræði, Lyfjagreiningartækni og Klínískri lyfjafræði I en mér líst bara vel á þetta (eruð þið nokkuð sofnuð?). Ég sleppi tveim fögum sem ég tek næsta vor svo að ég verð ekki í jafn mikilli geðveiki og ég var í fyrir áramót. Enda styttist í sumarið og mótin og þá er eins gott að geta einbeitt sér almennilega að æfingunum. Ég var allavega alveg á því eftir síðustu önn (þar sem ég var í fullu námi í fyrsta skipti) að það hafi verið ein gáfulegasta ákvörðun lífs míns að taka þetta nám hægar.
Það er alveg magnað hvað ég get orðið rosalega húkkt á hlutum en nýjasta æðið er að prjóna....og já þið lásuð rétt ég er komin með prjónaæði. Þetta byrjaði allt mjög sakleysislega þegar hún mamma ákvað að vera svo indæl að prjóna á mig lopapeysu og bað mig um að koma með sér í prjónabúðina til að velja mynstur og liti. Ég auðvitað gerði það alveg grunlaus um hvað biði mín. Eftir að hafa staðið í búðinni í lengri tíma að pæla í mynstrum, peysum, litum og lopa fór mig nú aðeins að klæja í lófana að prófa að prjóna aftur sjálf. Ég hafði nú ekki gert það síðan ég var svona 11 ára þegar ég missti endanlega þolinmæðina á því hvað ég prjónaði ójafnt og barnalega....já ég veit ég var barn en fullkomnunaráráttan fór snemma að segja til sín. Eftir þetta fór ég í mat til mömmu þar sem ég ákvað að biðja hana um að rifja þetta aðeins upp með mér. Ég vissi svo ekki af fyrr en ég var búin að kaupa mér prjóna, garn, heklunál og meira að segja kaðlaprjóna og búin að prjóna tvö eyrnabönd og vettlinga. Þetta er alveg magnað....en talandi um það þá ætla ég að láta þetta duga í bili svo ég geti drifið mig heim og náð að prjóna aðeins áður en ég fer á æfingu! Laughing
Gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina!
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að sársaukafullur krampi í fótlegg merkir að kalkstaðan sé lág. Þig gæti líka skort magnesíum, þar sem þess er þörf til að kalkið nýtist beinum...