Fréttir

| Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11.21 | - Uppskift frá Café Sigrún

Blómkáls og kartöflusúpa

Þessi er fullkominn að hausti þegar maður getur notað fínu nýju kartöflurnar og ef maður býr svo vel að eiga blómkál úr garðinum þá er það sko ekki verra.


Súpan er mild og fín, afar mögur þannig að hún hentar vel fólki sem vill létta máltíð en seðjandi. Mér finnst rosalega gott að setja smávegis af rifnum osti og jafnvel rifnum parmesan út í til að fá meira bragð en það er allt eftir smekk hvers og eins auðvitað. Ég veit fátt betra á köldum haustdegi en að borða súpu úr fersku, nýuppteknu grænmeti. Þessi uppskrift kemur upprunalega úr litlum ítölskum bæklingi en ég er aðeins búin að breyta henni þó og gera hana hollari.
 
Blómkáls og kartöflusúpa
Fyrir 2-3
 
* 1/2 stór blómkálshaus
* 1/2 stór kartafla, skorin í teninga
* 375 ml léttmjólk (eða nýmjólk fyrir þá sem vilja)
* 500 ml grænmetissoð (500 ml soðið vatn 1-2 grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel)
* Nokkrir vorlaukar
* 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
* 13 gr spelti (kartöflumjöl fyrir þá sem hafa glúteinóþol)
* 20 gr rifinn, magur ostur
Lítill bútur ferskur parmesan (má sleppa), rifinn á rifjárni
* Heilsusalt (Herbamare)
* Pipar
 
Aðferð:
* Brjótið blómkálið í litla jafn stóra sprota.
Setjið blómkálið í stóran pott ásamt mjólkinni, kartöfluteningunum, grænmetissoðinu og hvíta partinum af vorlauknum (sá græni er notaður ofan á súpuna).
* Sjóðið allt í 20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjög mjúkt.
* Síið vökvann í stóra skál og geymið grænmetið í annarri skál.
* Hitið kókosfeitina í stóra pottinum og bætið speltinu saman við. Hrærið allan tímann og mjög hratt í 1 mínútu eða svo (þangað til að úr verður smá grautur).
* Bætið vökvanum (sem var síaður frá) hægt saman við, smátt og smátt í einu þangað til allt blandast vel saman.
* Látið suðuna koma upp og látið malla í 2-3 mínútur.
* Bætið grænmetinu saman við og smakkið til með salti og pipar.
* Notið nú töfrasprota til að mauka súpuna eða setjið í nokkrum skömmtum í matvinnsluvél eða blandara. Blandið þangað til súpan er orðin silkimjúk (þið getið geymt nokkra bita af blómkálinu til að hafa grófari áferð ef þess er óskað).
* Bætið rifna ostinum saman við og hrærið þangað til hann bráðnar.
* Bætið parmesan ostinum út á.
* Saxið græna hlutann af vorlauknum og dreifið yfir.
* Berið fram strax.
* Gott er að hafa nýbakað brauð með súpunni.
 

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að FRÍ var stofnað 16 ágúst 1947