Fréttir

| Fimmtudaginn 14. janúar kl. 14.28 |

Kókosgrillađur kjúklingur

-Uppskrift af Café Sigrún Kókosgrillađur kjúklingur

 
Frekar sterkur og góður réttur sem hreinsar stífluð nef nokkuð vel og er því góður fyrir kvefaða.
 


Kókosgrillaður kjúklingur
Fyrir 2-3
 
* 360 gr kjúklingabringur. Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic)
 
Marinering, innihald:
* 2 dl fitusnauð kókosmjólk (light coconut milk), lífrænt framleidd
* 50 gr afhýddur og fínt saxaður engifer
* 12 gr coriander
* 2 stk hvítlauksgeirar
* 2 stk rauður chillipipar (eða minna fyrir þá sem þola illa sterkan mat)
* 2 msk tamarisósa
* 1 msk ávaxtasykur
* 1/2 msk austurlensk fiskisósa (Nam Pla). Fæst í flestum stærri matvöruverslunum og ætti að vera með austurlensku matvörunum.
* safi úr 1 lime
* Blandið öllum hráefnunum saman.
* Setjið í skál ásamt kjúklingnum og dreifið vel yfir.
* Látið skálina í kæli og látið marinerast í 2 tíma
 
Aðferð
* Hitið kjúklinginn vel ásamt svolitlu af marineringunni á pönnu (takið bringuna upp úr og skerið í hana eftir um 10 mínútur. Ef hún er enn þá rauð í skurðinum þá skal hita hana lengur, hún verður að vera steikt í gegn).
* Hitið restina af sósunni upp og berið fram í skál.
 
* Gott að bera fram með hýðishrísgrjónum eða bygggrjónum og fersku salati. Þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða bygggrjón en mega borða hýðishrísgrjón.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að ef hnéð á þér er aumt þar sem skelin mætir leggnum gæti það verið vísbending á vítamín-og steinefnaskort..