Fréttir

| Mánudaginn 23. nóvember kl. 09.16 |

Crepes međ grćnmeti og bygggrjónum

Crepes međ grćnmeti og bygggrjónum

Þessi réttur er rosa góður. Hver man ekki eftir pönnukökunum á Cafe París eða á Nýja Kökuhúsinu!! Þessar eru ekkert ósvipaðar nema það er ekkert smjörbragð af grjónunum og sinnepssósan er mjög fitulítil.


Ég nota magran ost líka. Þegar ég geri venjulegar pönnsur geri ég aðeins fleiri en ég þarf og nota svo í þennan rétt (sleppi þá vanilludropunum og kaffinu). Þegar grjónablandan er svo tilbúin set ég blönduna í hverja pönnuköku og baka aðeins inn í ofni. Pönnsurnar verða aðeins stökkar en mér finnst það bara ekkert verra.

Crepes með grænmeti og bygggrjónum
Gerir 8 crepes

Pönnukökur
* 1 bolli spelti
* 1 msk vínsteinslyftiduft
* 1 egg
* 1 bolli undanrenna
* 1 msk kókosfeiti

Aðferð:
* Blandið öllu saman og hitið pönnu (á um það bil næst hæsta hitastigi) og setjið smá kókosfeiti á pönnuna. Það gæti þurft að lækka á hitanum.
* Bakið 6-8 frekar þykkar pönnukökur (setja eina ausu á pönnuna snögglega, þekjið pönnuna og hella restinni af deiginu aftur ofan í skálina með deiginu í, á að taka um 7 sekúndur í allt).

Fylling
* 2 dl hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley)
* 100 gr sveppir, saxaðir frekar fínt
* 7 vorlaukar, eða einn stór blaðlaukur
* 2 hvítlauksrif, marin
* 1/2 tsk karrí
* 1 rauð eða gul paprika í bitum
* 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) og smá pipar
* 100 gr rifinn, magur ostur
* 2 msk tamarisósa

Sinnepssósa
* 4 msk sætt sinnep (það er samt enginn viðbættur sykur)
* 1 tsk sinnepsfræ, svört en má líka nota ljós með (enska: mustard seeds)
* 2 tsk agavesíróp
* 3 msk eða meira af majonesi. Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones (6% fita) í flestum búðum en það inniheldur yfirleitt sykur og viðbætt efni
* 4 msk eða meira af AB-mjólk eða hreinu, fitulausu jógúrti

Aðferð:
* Sjóðið hrísgrjónin eða bygggrjónin.
* Steikið laukinn og hvítlaukinn úr smá kókosfeiti og vatni ef þarf.
* Steikið sveppina upp úr tamarisósu og vatni, bætið paprikunni saman við.
* Í stórri skál, blandið saman grjónunum, sveppunum og bætið ostinum, paprikunni, sinnepsblöndunni, lauknum og kryddinu. Búið til meiri sinnepssósu ef ykkur finnst þessi ekki nóg (á að vera frekar mikið af henni, blandan má vera frekar blaut).
* Setjið 3-5 msk af hrísgrjónafyllingunni (eftir því hvað þið viljið mikið) á hverja pönnuköku, rúllið þeim upp í böggla eða rúllið þeim upp eins og þykkum pönnukökum og leggið á bökunarpappír.
* Bakið í 15-20 mínútur við 180°C.

* Mjög gott að útbúa deginum áður, henda í ísskápinn og hita daginn eftir.
* Líka upplagt í nestið ef þið getið hitað pönnukökurnar upp.
* Fylltar pönnukökur má gjarnan frysta og hita svo upp í ofni.
* Gott er að eiga frosnar pönnukökur til að nota í þennan rétt því tímafrekt getur verið að baka pönnsur.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.