Fréttir

| Laugardaginn 03. október kl. 23.27 |

Fiskiréttur frá Goa

Fiskiréttur frá Goa

Þetta er frekar einfaldur indverskur fiskiréttur. Goa er eyja rétt við utan Indland sem að Portúgalar réðu einu sinni yfir. Það skiptir svo sem engu máli, rétturinn er fínn og hollur.


Ekki láta hráefnið hræða ykkur en best er að nálgast þau í austurlenskum matvörubúðum. Ef þið finnið ekki curry leaves er best að sleppa þeim (það kemur ekkert annað í staðinn). Ef þið finnið ekki cuminfræ og corianderfræ má nota malaðar útgáfur af fræjunum. Ef þið eruð viðkvæm fyrir chilli, skuluð þið bara nota einn í staðinn fyrir þrjá.

Fiskiréttur frá Goa
Fyrir 4-5

* 35 gr kókosmjöl (gróft), ristað á pönnu
* 2 hvítlauksgeirar, afhýddir og saxaðir gróft
* 3 litlir chilli (rauðir), saxaðir gróft
* 2 tsk corianderfræ
* 2 tsk cumin fræ (ekki kúmen)
* 1/2 tsk malað turmeric
* 1 msk tamarisósa
* 1 msk ferkst engifer, afhýtt og saxað gróft
* 1 laukur saxaður meðalgróft
* 1 laukur saxaður gróft
* 75 ml kalt vatn
* 1 msk kókosfeiti
* 2 meðalstórir tómatar, saxaðir meðalgróft
* 8 curry lauf (fæst í austurlenskum búðum og sumum matvöruverslunum). Ef þau fást ekki má sleppa þeim
* 175 ml grænmetissoð (1 gerlaus teningur frá Rapunzel) eða fiskisoð fyrir þá sem vilja
* 300 ml kókosmjólk (enska: coconut milk)
* 1 kg ýsa (eða þorskur fyrir þá sem borða þorsk) skorin í bita

Aðferð:
* Maukið saman í matvinnsluvél; kókosmjöl, hvítlauk, chilli, coriander- og cuminfræin, turmeric, tamarisósu, engifer og gróft saxaða laukinn ásamt kalda vatninu þangað allt er maukað saman. Gætuð þurft að láta matvinnsluvélina ganga í 1 mínútu.
* Hitið kókosfeitina (ásamt smá vatni ef þarf) á stórri pönnu (eða grunnum potti).
* Hitið smátt saxaða laukinn þangað til hann er orðinn örlítið gulleitur (í um 5 mínútur).
* Bætið kókosblöndunni úr matvinnsluvélinni saman við og hitið þangað til kemur góð lykt eða í nokkrar mínútur. Hrærið reglulega í öllu á pönnunni.
* Bætið tómötunum, curry laufunum, grænmetisteningnum og sjóðandi heita vatninu út á pönnuna.
* Látið malla, ekki með lokinu á í um 10 mínútur þangað til sósan fer að þykkna.
* Bætið kókosmjólkinni út í.
* Bætið fiskinum við og látið malla við vægan hita í um 10 mínútur með lokinu á eða þangað til fiskurinn er orðinn hvítur og laus í sér.

* Berið fram með bygggrjónum, hýðishrísgrjónum, basmati hýðishrísgrjónum, naan brauði, gúrkusósu o.s.frv. Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða bygggrjón eða naan brauð.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að Jón Halldórsson var fyrsti íslendingurinn til að keppa á ÓL en hann keppti í 100m hlaupi í Stokkhólmi 1912.