Fréttir

| Laugardaginn 22. ágúst kl. 21.22 |

Tandoori kjúklingaréttur

Tandoori kjúklingaréttur

Hér kemur uppskrift sem allir sem elska kjúlla ættu að prufa, hann er kryddaður og góður og MEXICANSKUR sem er lykilorð hjá mér:) Uppskriftin er fyrir 3-4


* 1 kjúklingur soðinn eða grillaður, skinnlaus (verður að vera tilbúinn þ.e. ekki hrár). Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic).
* 1/2 lítri af jógúrt


* 2 msk maísmjöl eða kartöflumjöl og 2 msk vatn (athugið að í upprunalegu uppskriftinni var rjómi svo ef þið viljið frekar svoleiðis þá notið þið hann, mér finnst jógúrtið mjög fínt)
* 100-200 gr mangomauk. Hægt er að kaupa lífrænt mango chutney í heilsubúðum
* 50-75 gr möndluflögur
* 2-3 vel þroskaðir bananar
* 3 msk tandoori krydd
* 2 msk milt karrí

Aðferð:
* Rífið allt kjöt í strimla setjið í eldfast mót.
* Sneiðið bananana og setjið ofan á kjúklinginn.
* Blandið maísmjölinu saman við vatnið og hrærið vel. Hellið út í jógúrtina þegar blandan er orðin kekkjalaus.
* Blandið mango maukinu saman við jógúrtina í meðalstórri skál.
* Setjið tandoori kryddið og karríið út í og hrærið vel. Sósan ætti að verða ljósrauð eða ljósbleik.
* Hellið yfir kjúklinginn.
* Dreifið möndlunum yfir.
* Hitið í um 10-20 mínútur 180-200°C.

* Það er mjög gott að hafa ferskt salat, grjón (hýðishrísgrjón eða bygggrjón) og heitt, gróft snittubrauð með þessum rétti.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að sársaukafullur krampi í fótlegg merkir að kalkstaðan sé lág.  Þig gæti líka skort magnesíum, þar sem þess er þörf til að kalkið nýtist beinum...