Fréttir
Rabbabara- og bananadrykkur
Ég veit ađ drykkurinn lítur ekki sérstaklega girnilega út svona ljósbrúnn en trúiđ mér...hann er dásamlega góđur og fyrirgefst alveg ljótleikinn.
Drykkurinn er ofurhollur, fullur af trefjum, C vítamíni, andoxunerefnum o.fl. Einnig er hann góður fyrir blóðrás og hjartað. Rabbabari á að minnka hættu á myndun krabbameinsfruma og á að vera góður við bólgum í liðum, ofnæmum og til að lækka háan blóðþrýsting. Drykkurinn er mildur, sætur og passar eiginlega á hvaða tíma dags sem er, fínn að morgni en líka góður eftir vinnu eða ræktina. Það má sleppa því að sjóða döðlur og rabbabara og láta döðlurnar liggja í bleyti í sólarhring og mauka svo vel með rabbabaranum.
Rabbabara- og bananadrykkur
Fyrir 2
* 180 gr döðlur
* 120 gr rabbabari
* 100 ml appelsínusafi, hreinn
* 1 stór banani, vel þroskaður
* 150 ml sojamjólk (einnig má nota haframjólk, möndlumjólk hrísmjólk eða undanrennu)
Aðferð:
* Setjið döðlur, rabbabara og 50 ml af appelsínusafa í pott.
* Sjóðið í 10 mínútur eða þangað til hægt er að mauka döðlurnar og rabbabarann með gaffli.
* Kælið vel.
* Setjið rabbabara- og döðlumaukið í blandara.
* Bætið banana og afganginum (50 ml) af appelsínusafa út í.
* Blandið vel.
* Bætið mjólkinni saman við og blandið þangað til vel maukað.
* Nota má eplasafa í staðinn fyrir appelsínusafa.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- að óhollt mataræði eykur hættuna á þunglyndi og skapsveiflum.