Fréttir

| Þriðjudaginn 26. maí kl. 13.27 |

Mexikönsk ýsa

Mexikönsk ýsa

Mexikönsk ýsa - Smelltu á myndina til ađ sjá stćrri mynd, opnast í nýjum glugga Ég man ekki hvađan ţessi uppskrift er en hún er ađ minnsta kosti bragđgóđ, létt og afar holl. Ţađ er hćgt ađ kaupa mjög fínar og hollar sósur í heilsubúđum (sem ekki var hćgt hérna fyrir nokkrum árum) svo ţađ er um ađ gera ađ notfćra sér ţađ! Gćtiđ ţess samt ađ salsasósur geta veriđ sterkar svo kaupiđ mild en ekki hot sósu ef ţiđ viljiđ ekki of sterkan rétt.


Mexikönsk ýsa
Fyrir 2-3

* 400-500 gr ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
* 100 gr magur ostur, rifinn
* 2 dl mexikönsk grænmetissósa (salsa). Gætið þess að ekki sé sykur eða viðbætt efni (t.d. E-600 efni) í sósunni. Sósan ætti ekki að innihalda mikla fitu því uppistaðan ætti að vera grænmeti. Kaupið helst lífrænt framleidda sósu í heilsubúð.
* 2 dl salsasósa, mild (passið einnig hér að kaupa holla og lífrænt framleidda sósu úr heilsubúð)
* 1 tómatur skorinn í þunnar sneiðar
* 2 msk fersk steinselja, söxuð
* Heilsusalt (Herbamare) og pipar

Aðferð:
* Skerið ýsuflökin í nokkra stóra bita.
* Leggið ýsubitana ofan í eldfast mót (óþarfi að smyrja).
* Blandið salsasósunni og hinni sósunni saman og hellið yfir.
* Saltið og piprið eftir smekk.
* Leggið tómatsneiðarnar ofan.
* Dreifið söxuðu steinseljunni yfir.
* Stráið rifna ostinum yfir.
* Hitið í ofni við 200°C í 20 mínútur.

* Berið réttinn fram með brúnum hrísgrjónum og salati eða jafnvel grófu brauði.
* Ef þið viljið að ýsan taki í sig meira bragð af sósunni þá er gott að þekja ýsuna alveg með sósunni og láta hana liggja svoleiðis í nokkra klukkutíma í kæli.

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að Sigurður Sigurðsson komst fyrstur Íslendinga í úrslitakeppni í frjálsíþróttum á ÓL 1936 í Berlín, en hann keppti í þrístökki.