Fréttir
Einfaldur grćnmetisréttur í ofni
Þessi réttur er bæði einfaldur, hollur og nokkuð ódýr (alltaf góð blanda). Hann er einmitt fullkominn þegar maður á smá grænmeti í ísskápnum, nokkur egg, ost í frystinum (eða ísskápnum) og afgangspasta.
Rétturinn er einnig prótein-, kalk- og trefjaríkur en samt fitusnauður (ef maður notar magran ost). Upplagður námsmannamatur í miðri viku nú eða fyrir fjölskylduna...þetta er nefnilega svona réttur sem öllum finnst góður, líka börnunum!
Einfaldur grænmetisréttur í ofni
Fyrir 2-3
* 85 gr pastarör eða skrúfur úr spelti
* 1 blaðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar (miðjan notuð þ.e. hvíti endinn og blöðin ekki notuð)
* 85 gr frosnar, grænar baunir
* 85 gr frosin maískorn (má nota úr dós)
* 1 rauð paprika, fræhreinsuð og skorin í sneiðar eða bita
* 1 egg
* 2 eggjahvítur
* 20 ml sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, möndlumjólk eða undanrennu)
* 60 gr magur ostur (einnig má nota sojaost)
* 2 msk parmesan ostur (má sleppa)
* 1 gerlaus grænmetisteningur
* Svartur pipar eftir smekk
* Smá klípa steinselja
* Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
* 1/2 tsk kókosfeiti
Aðferð:
* Hitið ofninn í 180°C.
* Smyrjið eldfast mót (sem tekur rúmlega 1 lítra) með kókosfeiti (dýfið eldhúspappír ofan í kókosfeiti og nuddið eldfasta mótið að innan).
* Setjið grænmetisteninginn í pott með sjóðandi vatni og leysið hann upp.
* Sjóðið paprikuna, maískorn, maísbaunir og blaðlauk í 5 mínútur.
* Bætið pastanu út í pottinn með grænmetinu og sjóðið í 5-7 mínútur eða þangað til næstum því tilbúið.
* Sigtið vökvann frá (þurfið ekki að nota hann meira). Setjið pastablönduna í stóra skál.
* Hrærið saman undanrennu, eggi og eggjahvítunum, helmingnum af ostinum í lítilli skál.
* Kryddið eftir smekk.
* Hellið eggjablöndunni út í pastablönduna og blandið vel saman.
* Hellið blöndunni allri í eldfasta mótið.
* Dreifið afganginum af ostinum yfir réttinn.
* Hitið í 20 mínútur.