Fréttir

| Mánudaginn 13. apríl kl. 23.29 |

New York salat međ grilluđu grćnmeti og hnetum

New York salat međ grilluđu grćnmeti og hnetum

Ţetta salat er undir beinum áhrifum frá New York. New York er eins og allt sem mađur sér í sjónvarpsţáttum og bíómyndum og auđvitađ meira en ţađ! Ţvílíkt matarhimnarríki. Nefni bara Whole Foods Market. Ţar myndi ég glöđ dvelja í svona 3 vikur án ţess ađ fara út úr búđinni! Ţar var meira ađ segja hćgt ađ fá íslenskt vatn, fisk og lambakjöt.


Fyndið að sjá íslenska fánann í kjötborðinu! Allavega. Þegar ég kom til baka þá langaði mig í eitthvað ferskt og gott salat eins og maður fær á þessum Deli stöðum (smáréttastöðum) og ég bjó til þetta salat. Það sniðuga við salöt er að það má bæta endalaust við þau og skipta út innihaldinu. Svo er það líka æðislega gott innan í vefjur (maís eða speltkökur) og er auðvitað stútfullt af hollustu og vítamínum. Hafið þið prófað að baka maískorn? NAMM.

 

New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum
Fyrir 2

* 2 pokar af blönduðu salati (rauð og/eða græn lauf t.d. eikarlauf, spínat, ruccola, lambhagasalat o.s.frv.)
* 1 bolli maískorn, frosin
* 3 paprikur, gul, rauð og appelsínugul
* 150 gr mjög litlir sveppir (button) ekki niðurskornir. Ef þeir eru stórir má skera þá í helminga
* 1 lúka ósaltaðar, blandaðar hnetur þurrsteiktar á pönnu, muldar gróft (setjið í plastpoka og lemjið nokkrum sinnum með einhverju þungu)
* 1 msk af tamarisósu sem fer á hneturnar strax eftir steikingu
* 15-20 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
* 1 vel þroskað avacado, skorið í grófa teninga
* 2 msk sesamolía
* 3 msk tamarisósa
* 2 msk fiskisósa (Nam Plah). Fiskisósa ætti að fást í austurlensku deildunum í flestum matvöruverslunum


Aðferð:
* Skerið paprikurnar langsum í 4-6 sneiðar og setjið á bökunarplötu (bökunarpappír undir) og snúið hýðinu upp.
* Dreifið sveppum einnig á plötuna.
* Blandið saman tamarisósu, fiskisósu og sesamolíu og penslið grænmetið á plötunni.
* Setjið maískornin í skál og smávegis af sósunni út í. Hrærið vel.
* Dreifið svo maískornunum á aðra plötu.
* Hitið á hæsta hita undir grilli í um 20-30 mínútur.
* Fylgist með maískornunum þær mega ekki brenna mikið (mega dökkna þó nokkuð samt) en hitt grænmetið má verða mjög dökkt og jafnvel pínu brunnið. Ef maískornin eru farin að brenna takið þá plötuna úr ofninum eða færið neðar í ofninum.
* Þurristið hneturnar. Um leið og þær eru orðnar heitar, slettið þá 1 msk af tamarisósu yfir þær.
* Skolið salat og setjið í stóra skál.
* Setjið kirsuberjatómatana og avacado út í, breiðið plast yfir skálina.
* Takið grillaða grænmetið úr ofninum og kælið aðeins. Rífið paprikur í ræmur ef þið viljið hafa þær mjórri og dreifið yfir salatið.
* Dreifið sveppunum og maískornunum yfir salatið.
* Dreifið muldu hnetunum yfir salatið.

* Berið fram með t.d. hollri salatsósu úr ab mjólk eða jógúrt með hvítlauk og kryddi út í og nýju brauði. Svo er upplagt að nota maís- eða speltvefjur (tortilla) með. Athugið þó að yfirleitt er glútein í keyptum vefjum svo lesið vel á innihaldslýsingar.

* Hægt er að nota annað grillað grænmeti t.d. kúrbít eða eggaldin, tómata o.s.frv. Eins má rífa ferskan parmesan yfir salatið eða nota ristaðar furuhnetur, sólblómafræ, sólþurrkaða tómata, þistilhjörtu, ólífur og svo mætti lengi telja.

* Fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi má nota fitusnauðar kartöfluflögur yfir salatið. Kaupið hollari kartöfluflögur í heilsubúðum.

 

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að Jón Halldórsson var fyrsti íslendingurinn til að keppa á ÓL en hann keppti í 100m hlaupi í Stokkhólmi 1912.