Fréttir

| Sunnudaginn 11. janúar kl. 21.59 |

Vantađi bara ađ veifa íslenska fánanum hátt

Vantađi bara ađ veifa íslenska fánanum hátt

-Segir Vésteinn Hafsteinsson snilldar kastþjálfari Gerds Kanter um sigur hans á Ólympíuleikunum í peking i lok sumars hér kemur stutt viðtal við Véstein um þjálfarareynslu hans síðustu ára og einnig tilfinningu hans þegar ólypíutitillinn var í höfn.


 Í september byrjun var haldið í annað sinn tilraun við heimsmeistarametið í Kringlukasti karla.

Keppni þessi var haldin í gamla heimabæ Vésteins, Helsingborg, Svíþjóð.

 

Það sem þótti einna skemmtilegast við þessa keppni var að þarna var kept í kringlukasti bæði í kvenna og karla flokki. Bestu kastarar á norðurlöndunum í kvennaflokki var saman kominn í helsingborg og stemming á áhorfendapöllunum var alveg gífurleg.


Hátindur keppninnar var svo þegar karlarnir tóku við en skærasta stjarnan í kringlukasti um þessar mundir Gerd Kanter var að sjálfsögðu mættur til að reyna við heimsmetið í kringlukasti.


Eins og flestir ef ekki allir vita þá hefur Vésteinn Hafsteinsson fyrrv. Kringlukastari verið þjálfari Gerds í mörg ár en eflaust færri vita að ástæðan fyrir að Vésteinn fór út í þessa sérþjálfun var þegar Íslendingurinn Magnús Aron Hallgrímsson kringlukastari flutti til Svíþjóðar og leitaði til Vésteins um hvort hann væri ekki til í að þjálfa sig. Vésteini leist mjög vel á það og úr því varð gott vinasamband milli þeirra tveggja.


Vésteinn ákvað á svipuðum tímapunkti að taka að sér fáeina fleiri kastara en hann gerðist Landsliðsþjálfari Dana í kastgreinum og fóru þá fleiri undir hans verndarvæng. Magnús var þó eini íslendingurinn. Svo æxlaðist það að Gerd Kanter fékk að æfa einnig með Magnúsi og Vésteini, en taka má hér fram að á þessum tímapunkti var sko Magnús Aron stjarnan hér og Gerd var „litli" gaurinn.

 

Svo liðu árin og margt breyttist. Vésteinn ákvað að flytjast aftur til Helsingborg eftir að hafa búið í Árhúsum í 2 ár og sagði um leið skilið við Team Danmark og ákvað að fara sína eigin leið. Magnús ákvað að hætta að æfa eins og atvinnumaður, og uppi stóð Vésteinn með nokkra kastara frá Danmörku, Gerd Kanter ásamt nokkrum efninlegum kösturum víðsvegar af úr heiminum.


Vésteinn var þó fjarri því að hætta að þjálfa enda hafði Gerd sínt stöðugar framfarir á þeim árum sem hann hafði verið hjá Vésteini. Svo gerðist það fyrir tveimur árum rúmum að Gerd kastaði yfir 70 metrana og small tæknin svona rosalega vel hjá honum. Á þessum tímapunkti var Vésteinn búinn að mynda góðan hóp utan um Gerd en eins og flestir vita þá er Gerd frá Eistlandi og kemur aðeins til Vésteins c.a 6 sinnum á ári og stoppar í 1-2 vikur í senn.


Þjálfunin á honum felst þó í því að hann er með þjálfara í Eistlandi sem fer yfir prógramið sem Vésteinn sendir á hann og tekur allt upp á video og svo er það sent á milli og Vésteinn fer yfir og segir til um hvað mætti betur fara. Gerd er þó með mikla flóru af fólki í kringum sig, sinn eigin sjúkraþjálfara svo eitthvað sé nefnt.


Æfingaferðir til Helsingborgar og svo langar æfingabúðir út um allan heim, eru reglulegt ferli í æfingaprógrami Vésteins. En samstarf þeirra hefur gengið mjög vel í gegnum árin og veit ég ekki hvor þeirra er ánægðari með hvorn annan enda mjög samstíga í öllu.


„Að þjálfa Gerd Kanter er eins og að stjórna vélmenni... maður segir honum hvernig hann á að gera eitthvað ákveðið og svo framkvæmir hann það nákvæmlega eins og ég hafði séð það fyrir mér" segir Vésteinn um samstarf hans og Gerds.


Við spjall á Gerd þá kemur hann fyrir sem ungur maður í risavöxnum líkama. Stutt í brosið í hláturinn og greinilega hefur gaman af lífinu.
Frá því að ég kynntist fyrst Gerd fyrir rúmum 2 árum og þangað til dagsins í dag sé ég mikla breytingu á honum en það er greinilegt að lífið er orðið aðeins flóknara og alvörugefnara.


En á þessum tveimur árum hefur mikið gerst í lífi hans, hann varð heimsmeistari og gríðarleg umfjöllun sem fylgdi því og svo á síðasta ári varð hann ólympíumeistari í kringlukasti þannig í raun það eina sem hann á eftir af ferli sínum er að ná heimsmetinu í kringlukasti og er hann ekki svo langt frá því í dag, því var þetta mót haldið í byrjun september 2008 til að gera heiðarlega tilraun að ná heimsmetinu.


Því miður tókst það ekki í þetta skiptið enda Gerd orðinn þreyttur eftir annasumt sumar. Gerd var þó ánægður með lífið og tilveruna og tók á léttu strengina og sagði bara... við tökum þetta á næsta ári svo spennandi verður að fylgjast með þeim tveimur á þessu nýja ári.


Vésteinn viðurkennir að toppurinn á tilverunni var þegar Ólympíugullið var í höfn enda langþráður draumur að rætast og ekki verra þegar það gerist þegar maður er þjálfari meistarans. „Mér leið eins og þjóðarhetju" þegar Gerd vann sigurinn á Ólympíuleikunum og við tökurnar sem við fengum þegar við komum til Eistlands voru ótrúlegar, eflaust var þetta eins og þegar íslenska handknattleiksliðið kom til landsins með silfrið í sumar og sigurstolt íslendingar var með ólíkindum. Segir Vésteinn , en það vantaði bara að maður fór að flagga íslenska fánanum þegar Gerd sigraði því að sjálfsögðu var þetta gríðarlegur sigur fyrir mig sem þjálfara. Segir Vésteinn og hlær.

Karen Inga
Ritstjóri Frjálsar.net

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að talið er að koma megi í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með því að breyta um mataræði.