Fréttir
Ég er međ alveg frábćran ţjálfara og er í geggjuđu félagi
-Segir sleggukastarinn Sandra Pétursdóttir.
Sandra Bætti Íslandsmetið í sleggju í sumar og var ein þriggja kvenna sem kepptust um að kasta yfir 50 metrana á MÍ. Sandra er ung að árum og því ekki ólíklegt að við eigum eftir að sjá mikið frá þessari ungu og efninlegu stúlku
Nafn & búseta:
Sandra Pétursdóttir og bý í Reykjavík
Fæðingarstaður og ár:
Fæddist í Reykjavík árið 1989
Fjölskylduhagir:
Mamma, pabbi, lítill bróðir og naggrís
Í hvaða félagi ertu skráð?
ÍR
Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir?
Það er svo gaman að ná markmiðunum sem maður hefur sett sér í sinni grein og svo er félagsskapurinn alveg frábær.
Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu best í?
Sleggjan er í langmestu uppáhaldi enda er ég best í henni.
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?
Ég er ákveðin og geri vel það sem ég tek mér fyrir hendur
Hvað er á döfunni hjá þér?
Klára FG í vor og æfa svo ég bæti mig mikið næsta sumar
Nú varst þú í Noregi í sumar? Hvað varstu að gera þar?
Mig langaði til að skipta um umhverfi svo ég kom mér í samband við gamlan sleggjukastara í Löten sem bauð mér að búa hjá sér og konunni sinni. Hann var svo þjálfarinn minn í þessa 2 mánuði sem ég var þar. Það má því segja að þetta hafi verið langar æfingabúðir.
Einhver tenging við frjálsar þar?
Get ekki sagt að Löten sé mesti frjálsíþróttabær í heimi en þar var gott kastbúr og nóg af sleggjum;) Noregur er annars fínn staður fyrir kastara, fékk góða keppni frá stelpum á mínum aldri.
Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/klúbbi?
Ég er með alveg frábæran þjálfara og er í geggjuðu félagi
Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan?
Það var náttúrulega leiðinlegt að ná ekki 50 metrunum í sumar og svo var ég frekar svekkt að komast ekki á Evrópubikar en þetta kemur allt saman.
Er einhver rútína sem þú gerir alltaf fyrir hvert mót/hverja grein ?
Bara þetta venjulega, snemma að sofa, borða vel og góð upphitun.
Þín æðsta ósk?
Humm...það væri nú ekki slæmt að komast á ólympíuleikana. Og svo langar mig að frjálsar verði jafn vinsæl íþrótt og fótbolti:D
Framtíðin? Hvað ber hún í skauti sér?
Miklar æfingar. Svo langar mig að halda áfram að læra myndlist og ferðast.
Er eitthvað sem gæti farið betra í frjálsum á Íslandi?
Jájá, alltaf eitthvað sem má fara betur. Fá fleira fólk til að æfa og eins og hefur verið talað um áður þá má endurvekja sportið úti á landi.
Fylgistu mikið með íslensku frjálsíþróttafólki ?
Já, kemst ekki hjá því þar sem nánast allir þekkja alla. Er samt ekki ein af þeim sem man alla árangra hjá öllum á landinu
Helstu áhugamál?
Frjálsar að sjálfsögðu, myndlist - finnst voða gaman að mála og teikna og hef mjög gaman af því að ferðast.
Sérðu þig vera að keppa á Öldungarmótum í framtíðinni ?
Já, ekki spurning! Ætla að vera ótrúlega svöl amma sem á heimsmet í sleggjukasti í flokki 60 ára og eldri.
Ef svo í hvaða grein?
Líklegast sleggju, kringlu og kúlu. Kannski maður skelli sér í lóðakast líka.
Uppáhalds:
Matur: Jólamaturinn - hamborgarahryggur með brúnuðum kartöflum.
Drykkur: Svo margir...fer eiginlega eftir dögum.
Vefsíða: Engin sérstök.
Bók: Ég er örugglega búin að lesa Fagra Blakk svona 50 sinnum svo ætli það sé ekki hún.
Bíómynd/ir: Finnst Amelie alveg frábær mynd.
Þættir: Friends, Desperate housewives og Prison Break
Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór: Spretthlaup
Ferðalög: Tjald, svefnpoki og mamma að elda pastarétt á prímus.
Bikar: Gríðarleg stemning, andlitsmálning, fánar og dúskarnir góðu.
Öldungar: Þegar ég heyri þetta orð sé ég allavega fyrir mér einhverja eldgamla, krumpaða kalla í gömlum, snjáðum jakkafötum.
Breiðablik: Blikastrákarnir að syngja blikasöngva.
Sælgæti: Fylltar lakkrísreimar og fullt fullt af súkkulaði.
Besti frjálsíþróttamaður/kona fyrr & síðar ?
Æji veit ekki...
Skemmtilegasta minningin úr frjálsum ?
Þegar ég bætti íslandsmetið í sleggju í sumar
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Nei, enga sérstaka.
Eitthvað að lokum?
Takk fyrir mig
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- að Íris Grönfeldt var fyrst Íslenskra kvenna að kasta yfir 40m -50m- og svo 60 metrana