Fréttir
Ţarf bara ađeins ađ fínpússa tćknina...
-segir Linda Björk Lárusdóttir. Linda er grindahlaupari úr Breiðablik og hefur getið sér virkilega gott orð á sér sem slíkri. Við munum pottþétt á komandi árum fá að sjá enn meira frá henni og hennar afrekum en það er alveg þess vert að hafa augun á þessari fegurðardís.
Frjálsar.net heldur hér áfram að kynna landanum fyrir öflugu og efninlegu frjálsíþróttafólki
Nafn & búseta:
Linda Björk Lárusdóttir, Garðabær
Fæðingarstaður og ár:
Þýskaland, 1986
Fjölskylduhagir:
mamma, pabbi, yngri bróðir og kærasti
Í hvaða félag ertu skráð?
Breiðablik
Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir?
Fjölbreytnin og félagsskapurinn
Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu best í?
Það fer eiginlega alveg eftir því hvernig gengur hvað mér finnst skemmtilegast en 100m og 100m grind eru mínar helstu greinar. Held að ég sé nú betri í grindinni, þarf bara aðeins að fínpússa tæknina.
Munum við fá að sjá þig á stórmótum úti í heimi einn daginn?
Það er aldrei að vita ;)
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?
Ég er skipulögð, ákveðin og metnaðarfull.
Hvað er á döfunni hjá þér?
Það eru helst æfingar og skóli. Ég er að læra líffræði í Háskóla Íslands og ákvað að taka fullt nám þessa önnina svo það er nóg að gera og aldrei verið mikilvægara að skipulegga sig :)
Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/klúbbi?
Já engin spurning, er með sænskan styrktarþjálfara sem heitir Jimmy og hann er algjör snillingur. Ég kynntist honum í gegnum fimleikana, en ég æfði fimleika í mörg ár. Ég er búin að vera hjá honum undanfarin 3 ár og það hefur gert mjög góða hluti fyrir mig. Jón Sævar sér svo um hlaupaæfingarnar hjá Breiðabliki sem hefur verið mjög fínt, Breiðablik er góður klúbbur með frábæru fólki.
Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan?
ég varð frekar vonsvikin að ná ekki inn á NM 20-22 ára núna í september, lágmarkið í grindinni var 14.64s en ég hljóp á 14.71s í ágætis mótvindi á MÍ og tókst svo ekki að ná góðu hlaupi eftir það.
Er einhver rútína sem þú gerir alltaf fyrir hvert mót/hverja grein ?
Nei í rauninni ekki, held það sé ekki gott að vera of fastur í rútínu þó svo að upphitunin sé yfirleitt mjög svipuð. Ég reyni svo að forðast sykur sama dag og ég keppi.
Þín æðsta ósk?
Að ég og mínir lifi heilbrigðu og hamingjusömu lífi.
Framtíðin? Hvað ber hún í skauti sér?
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er ;)
Sérðu þig vera að keppa á Öldungarmótum í framtíðinni ?
já, það er örugglega bara skemmtilegt.
Ef svo í hvaða grein?
bara sem flestu.
Er eitthvað sem gæti farið betra í frjálsum á Íslandi?
Já, það vantar rosalega kynningu á íþróttinni. Ég var spurð að því um daginn eftir að hafa sagt að ég væri að æfa frjálsar íþróttir hvort það væri sem sagt enn þá keppt í því á Íslandi. Það getur ekki verið jákvætt
.
Fylgistu mikið með íslensku frjálsíþróttafólki ?
já
Helstu áhugamál?
Frjálsar íþróttir, fimleikar og já bara nánast allar íþróttir, vinir, ferðalög, versla, líffræði
Uppáhalds:
Matur: plokkfiskur, skinku crepes (franskar pönnukökur).....og margt fleira
Drykkur: kristall plús, fanta lemon og vatn
Vefsíða: frjalsar.net, facebook
Bíómynd/ir: hef mest gaman af gamanmyndum, dansmyndum og svo er alltaf voða fínt að horfa á "stelpumyndir"
Þættir: so you think you can dance, grey´s anatomy, friends, gossip girl, desperate housewifes
Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór: spretthlaup
Jón Arnar Magnússon: frábær íþróttamaður
Bikar: stemning
Öldungar: öldungamót
Grind: get gert miklu betur
Sælgæti: súkkulaði
Besti frjálsíþróttamaður/kona fyrr & síðar ?
Usain Bolt kemur sterklega til greina
Skemmtilegasta minningin úr frjálsum ?
ég, Helga Kristín og Sigurbjörg saman í herbergi í Monaco, alltaf að hlusta á lovestoned með JT. Góður félagsskapur, virkilega flott land og við fengum verðlaun í boðhlaupi ☺
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Kannski ekki beint fyrirmynd en það eru margir íþróttamenn sem ég lýt upp til. Finnst Susanna Kallur mjög flott í grindinni og Isinbayeva í stönginni.
Einhver saga að lokum?
Afi minn (Guðmundur Lárusson) segir alltaf: ,,Veistu hvernig maður á að hlaupa 400m hlaup? Þú hleypur 300m á fullu og tekur síðan endasprett"
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- að Íris Grönfeldt var fyrst Íslenskra kvenna að kasta yfir 40m -50m- og svo 60 metrana