Fréttir
Skemmtileg stemming á Öldungamótum
-Segir Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir í viðtali við frjálsar.net.
Margrét er ein þeirra sem byrjuðu í seinni kantinum í frjálsum íþróttum eins og það er oft kallað en miðað við það að hún er aðeins 19 ára gömul þá er langt í land að hún sé að fara að hætta, og stefnir á öldungamótin í framtíðinni:)
Margrét er einstaklega jákvæð á lífið og mikil fyrirmynd fyrir aðra.
Frjálsar sýnir hér hina hliðina á þessari lífsglöðu stúlku.
Nafn & búseta:
Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, kópavogsbúi í húð og hár
Fæðingarstaður og ár:
Fædd 1989 í Reykjavík
Fjölskylduhagir:
Á stóra og nána fjölskyldu, 3 systkini þannig að það er oft líf og fjör á heimilinu.
Í hvaða félagi ertu skráð?
Er í Breiðablik .
Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir?
Aðallega hreyfingin og félagsskapurinn.
Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu best í?
Grindahlaup er í mestu uppáhaldi hjá mér en þar sem ég æfi spretthlaup þá ætla ég að segja að ég sé best í því.
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?
Ákveðni og metnaður.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Í lífinu: klára Kvennó í vor og sennilegast háskólinn næsta haust.
Í frjálsum: nú tekur við uppbyggingartímabil sem ég er spennt fyrir. Svo verður gaman að sjá hvernig gengur á innanhússtímabilinu.
Hvað fékk þig til að byrja í frjálsum?
Þegar ég var lítil var ég alltaf frekar snögg að hlaupa en það var þó ekki fyrr en í 9.bekk sem ég lét tilleiðast og mætti á æfingu.
Nú ert þú ekki búin að vera rosalega lengi í frjálsum, Hvað má þjóðin búast við af Margréti?
Það mun framtíðin leiða í ljós. Markmiðin mín í dag eru að bæta persónulega árangurinn.
Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/klúbbi?
Já, ég held að ég geti sagt það. Deildin hjá Breiðablik fær hrós fyrir dugnað, margir góðir hlutir þar á ferð.
Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan?
Strax kemur upp í hugann vonbrigðin að tapa 4*100 á MÍ sumarið 2008, þar sem úrslitin voru dæmd af sjónarmun, svo jafnt var það.
Er einhver rútína sem þú gerir alltaf fyrir hvert mót/hverja grein ?
Já, upphitunarrútínan góða klikkar aldrei.
Þín æðsta ósk?
Hamingjan, er það ekki markmiðið hjá okkur ölllum?
Er eitthvað sem gæti farið betur í frjálsum á Íslandi?
Alltaf má gott bæta en mér finnst að fjölmiðlaumfjöllun um frjálsar mætti vera meiri.
Fylgistu mikið með íslensku frjálsíþróttafólki ?
Já, ég held að maður komist varla hjá því þegar maður er sjálfur í þessu.
Helstu áhugamál?
Fjölmörg : Íþróttir, útivera, ferðalög, heilsa, tónlist, tíska, eldamennska.
Sérðu þig vera að keppa á Öldungarmótum í framtíðinni ?
Já án nokkurs vafa. Skemmtileg stemming og gaman að taka þátt.
Ef svo í hvaða grein?
Bara öllu saman, langstökki, spretthlaupi, kúluvarpi.
Uppáhalds:
Matur: Alveg rosalega margt. Ég held samt að eldamennskan hans pabba standi uppúr.
Drykkur: vatn, ekki spurning
Vefsíða: fer oftast inná mbl.is og facebook.com þannig að það hljóta að vera þær.
Bók: Það eru svo margar góðar bækur, Arnaldur Indriða, Kite runner og Karítas án titils koma strax upp í hugann.
Bíómynd/ir: Er hrifnust af „kvikmyndahátíða-myndum" Er þar af leiðandi mikill aðdáadi RIFF
Þættir: Sex and the sity, Boston legal o.fl.
Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór: Spretthlaup
Ferðalög: Frakkland
Bikar: boðhlaup
Öldungar: kúluvarpskeppni
Lokahóf: lokahófið sem haldið var um daginn
Sælgæti: lakkrís
Besti frjálsíþróttamaður/kona fyrr & síðar ?
Guðrún Arnars
Skemmtilegasta minningin úr frjálsum ?
200m úrslitahlaup á MÍ 15-22 ára árið 2006. Rosalega jafnt hlaup en að lokum náði ég að sigra og stóð uppi sem Íslandameistari 15-16 ára.
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Fólk sem skarar fram úr.
Eitthvað að lokum?
Áfram Breiðablik
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- að óhollt mataræði eykur hættuna á þunglyndi og skapsveiflum.