Fréttir
Tékka alltaf ađ ţví hvort ađ samfellan/keppnisbúningurinn snúi ekki örugglega rétt....
Segir Ragnar Frosti Frostason, enn einn frjálsíþrótta snillinganna sem eru búsett erlendis. Frjálsar.net hefur fylgst með þessum snillingi í sumar og fannst núna komið tími til að fleiri fái að kynnast honum.... Hver er Ragnar Frosti eiginlega og hvað er hann að gera í svíþjóð.
Nafn & Búseta:
Ragnar Frosti Frostason, búsettur í Gautaborg í Svíþjóð
Fæðingarár og staður:
1982, eða fyrir "rétt rúmum 20 árum" á Sjúkrahúsinu á Sauðárkrók
Fjölskylduhagir:
Mamma og Pabbi og þrjú systkyni sem búa á Íslandinu góða, einhleypur.
Í hvaða félag ertu skráður?
UMSS/Tindastóll/Ullevi FK
Áhugamál:
Hlaup, tölvunerdast og basicly allt sem hefur eitthvað með keppni að gera, hef þann slæma vana að allt sem ég geri verður að vera keppni, sem er merkilegt þar sem ég er ekki bestur í öllu og er alveg fáránlega tapsár.
Markmið í lífinu:
Upphaflega var það að vera stærri en pabbi, er ekki alveg að sjá það gerast, síðann var það að vera stærri en litli bróðir minn, en það fór svo fjandans til, þannig að núna er það bara að hlaupa hraðar, vera minna meiddur, verða ríkur og kaupa mér Porsche !
Mottó:
Þetta reeeddaassst
Uppáhalds:
matur:Slátur og stappa, Svínahamborgarahryggur með
brúnuðum kartöflum og það mesta sem inniheldur Kebab.
drykkur:fer alveg eftir tilefninu
vefsíða:www.ragnarfrosti.com og einhver slatti af fréttasíðum þannig að maður viti hvað er að gerast í heiminum og í kringum sig.
bók:All nokkrar eftir Arnald Indriðason og Da Vinci Code, alltof latur samt við að lesa bækur.
bíómynd/ir:Vá held ég eigi mér bara engar uppáhalds í augnablikinu
Þáttur/Þættir:Það breytist alveg endalaust, allir gömlu hætta og nýju byrja, en í gegnum árin slær engin Friends
Hljómsveit/lag: Damien Rice og núna síðustu vikurnar er það Usher, Lil Wayne og Adam Tensta
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir:
Spretthlaup:Usain Bolt og meiðsli
Grænn:Blómið/plantan mín, takk fyrir að minna mig á að vökva hana
Gaddaskór:Asics
Jón Arnar:Maðurinn
Matur:Pizza
Winner:Ragnar Frosti
Eurovision:ææiii er ekki komið nóg af því
Í hvaða félag ertu skráð/ur og af hverju frjálsar ?
Er skráður í UMSS/Tindastól og Ullevi FK hérna í Svíþjóð.
Byrjaði að æfa frjálsar til að verða fljótari og betri fótboltamaður, frelsaðist svo, hætti í fótbolta og byrjaði að æfa á fullu, Gísli Sig á nú sinn stóra þátt í því. Og halló, að æfa með fullt af sveittum strákum og spila leiki á móti 21 öðrum eða æfa og keppa með stelpum í topp og tights hafði sennilega sín áhrif líka.
Uppáhaldsgrein í frjálsum ?
400m og 200m er líka fínt sko
Helstu afrek í frjálsum?
Ekkert almennilega merkilegt ennþá, aldrei orðið Íslandsmeistari í einstaklingsgrein í fullorðinsflokki en á nóg af silfurpeningum þar, en jú, einhverjir titlar í lengri boðhlaupunum, Íslandsmet í 4x800m, hef fengið þá ánægju að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópubikar og Smáþjóðaleikum.
Er framtíðin björt fyrir frjálsar íþróttir á íslandi ?
Já svona sæmilega, nokkrir efnilegir á uppleið en vantar samt fleiri iðkenndur, mót og að fleiri félög úti á landi nái að reisa sig upp aftur.
Fylgistu mikið með íslensku frjálsíþróttafólki ?
All þokkalega, eitthvað samt versnað eftir að ég flutti út.
Eru fjölmiðlar nógu duglegir að fjalla um frjálsar ?
Nei, en það má nú jú líka segja um flestar einstaklingsíþróttir á landinu, en er upp að vissu leiti líka undir okkur komið að fá fram virkilega góða einstaklinga sem geta verið með og fightast á stærri mótum í Evrópu, það myndi ekki skemma fyrir. Fjölmiðlar hafa bara áhuga á "stór"stjörnum og fótbolta.
Er einhver rútína sem þú gerir alltaf fyrir hvert mót/hverja grein ?
Tékka alltaf að því hvort að samfellan/keppnisbúningurinn snúi ekki örugglega rétt eftir að ég lenti í því að hlaupa næstum því í samfellunni öfugri í 200m á Evrópubikar í Slóveníu/Slóvakíu (man aldrei hvort landið það var)
Sérðu þig vera að keppa á Öldungarmótum í framtíðinni ?
Shitt... það eru nú bara tæp 10 ár í það, iss nei, keppi í venjulegum fullorðinsflokki þangað til ég verð cirka jafn gamall og Bjössi Arngríms (nálægt 50 er það ekki?) og vinn alla krakkana sem eru með einhvern derring
Skemmtilegasta minningin úr frjálsum ?
Sú nýjasta var sennilega að geta byrjað að æfa núna aftur eftir sumarið meiðsla/verkjalaus, en á annars þann leiðinlega vana að vera næstum aldrei ánægður eftir hlaupin hjá mér, en að hlaupa undir 49s inni í sumar og getað skv. minni skilgreiningu loxins kallað mig sjálfann 400m hlaupara fékk mig nú til að brosa smá
Besti frjálsíþróttamaður/kona sem að Ísland hefur alið af sér ?
Jón Arnar Magnússon og Guðrún Arnadóttir
Besti frjálsíþróttamaður/kona fyrr & síðar ?
úffff þessi er erfið, en Usain Bolt er núna kominn helvíti hátt á listann þrátt fyrir ungann aldur, en það hafa verið svo margir frábærir frjálsíþróttamenn í gegnum árin að ég get bara ekki gert upp á milli þeirra.
Hver er þín fyrirmynd ?
Jeremy Wariner, við erum að tala um að maðurinn er svipað hár og ég og álíka þungur en hleypur rúmum 5s hraðar en ég í 400m.
Eitthvað að lokum ?
SAMSTAÐA!!!