Fréttir

| Fimmtudaginn 04. september kl. 20.09 |

Muniđ sjá mig á stórmótum erlendis í framtíđinni

Muniđ sjá mig á stórmótum erlendis í framtíđinni

Segir Stefanía Hákonardóttir hlaupari úr Fjölni. Stefanía hefur æft og þjálfað í sumar á Höfn í Hornarfirði..

 Stefanía er úr Grafarvoginum og var því forvitnilegt að vita hvað hún var að gera í sveitinni í sumar.

Stefanía er ekki aðeins í Afrekshópi og úrvalshópi FRÍ heldur er hún einnig í Landsliði Íslands í millivegalengdum.

 Frjálsar.net ákvað því að fá að kynnast hinni hliðinni á þessari öflugu frjálsíþróttakonu framtíðarinnar


Nafn & búseta:
Stefanía Hákonardóttir og á heima í Grafarvoginum


Fæðingarstaður og ár:
Landspítalanum í Reykjavík árið 1990 (28.ágúst)


Fjölskylduhagir:
Á mömmu, pabba, eina eldri systir og kærasta


Í hvaða félagi ertu skráð?
Fjölni (UMFF)


Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir?
Fjölbreytileikinn, frjálsíþróttafólkið sjálft, að maður þurfi að vinna sem einstaklingur, lífstíllinn sem fylgir og bara félagskapurinn


Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu best í?
Ég myndi segja að 400m væri mín uppáhaldsgrein ásamt 200m og 4*100m. Mínar sterkustu greinar eru 400m og 800m


Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?
Mjög ákveðin, skipulögð og metnaðarfull


Hvað er á döfinni hjá þér?
Bara að koma sér inn í rútínu vetrarins - seinasta menntaskóla árið að byrja og svo fara æfingarnar að fara á fullt


Nú ert þú búin að vera í sveitinni í sumar, Er ekkert erftt að æfa þar?
Jú, ég get alls ekki neitað því. Var að þjálfa út á Höfn 4* í viku (mán-fimmtud.) og tók æfingar áður en ég fór að þjálfa, hljóp svo á þjóðveginum eða næstu túnum útí sveit. En það versta var eiginlega að vera að æfa ein og auðvita ekki með neinn þjálfar. En það var samt ágætt að prófa þetta. Get heldur ekki kvartað yfir aðstæðunum þar sem völlurinn á Höfn er alveg frábær (mætti samt vera minna rok ;) )


Hvaða tengsli áttu við Austurlandið og frjálsar þar?
Þau voru ekki mikil fyrr en í sumar. En kærastin minn (Bjarni Malmquist) er þaðan og ákváðum við að eyða sumrinu hjá foreldrum hans í sveitinni. Bjarni hefur verið að þjálfa krakkanna á Höfn og var því sjálfsagt að ég tæki þátt í því.


Áttu þér einhver Stór markmið í framtíðinni?
Jájá.. fullt af þeim, bæði varðandi frjálsar, námið og lífið sjálft


Munum við fá að sjá þig á stórmótum úti í heimi einn daginn?
Já alveg pottþétt


Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/klúbbi?
Já, Stebbi er alveg frábær. Svo stendur stjórn Fjölnis sig mjög vel að styrkja okkur og halda utan um liðið  og svo auðvita frábærir æfingafélagar sem skipta alls ekkert minna máli.


Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan?
Verð eiginlega að segja að seinasta eina og hálfa árið hafi verið mikil vonbrigði fyrir mig. Æfði rosalega vel og lagði mig alla í þetta, en uppskar lítið og gekk alls ekki eins og ég hafði vonast til.
Er einhver rútína sem þú gerir alltaf fyrir hvert mót/hverja grein ? Nei, get ekki sagt það. Eina er að ég fer í gegnum hlaupið í huganum áður en ég hleyp.


Þín æðsta ósk?
Að ég og mínir séum heilsuhraust og fái möguleika á að því að fylgja okkar draumum


Framtíðin? Hvað ber hún í skauti sér?
Meiri frjálsar og meira gaman  !


Er eitthvað sem gæti farið betra í frjálsum á Íslandi?
Mér finnst að það mætti vera meiri samstaða milli félaga og svo finnst mér að það þurfi að gera eitthvað í sambandi við fjölmiðlana, gera okkur aðeins meira áberandi. Og unglingastarfið mætti vera aðeins virkara. Þá er ég ekki bara að tala um að það þurfi að skipuleggja meira heldur þurfum við líka að vera duglegri að taka þátt og segja okkar álit.


Fylgistu mikið með íslensku frjálsíþróttafólki ?
Já, um allan heim


Helstu áhugamál?
Ferðast, lesa, taka myndir, elda, píanó, flestar íþróttir, vera í góðra vina hóp og útivist


Sérðu þig vera að keppa á Öldungarmótum í framtíðinni ?
Já, afhverju ekki


Ef svo í hvaða grein?
Ætli ég haldi mig ekki við hlaupin

 

Uppáhalds:

Matur: Grjónagrautur með slátri, heimabökuð (grilluð) pissa og humarpasta
Drykkur: Vatnið
Vefsíða: frjalsar.net og mbl.is
Bók: Rosalega margar.. Íslendingasögurnar og Dularfullu - Ævintýra bækurnar (Blyton) samt í sérflokki
Bíómynd/ir: The day after tomorrow og Lord of the Rings myndirnar
Þættir: Bráðavaktin, Greys og Desperate Housewifes

 

Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:

Gaddaskór: Nike
Ferðalög: Frjálsíþróttamót
Bikar: Máluð andlit og borðar í hárum
Öldungar: Gamlar adidas stuttbuxur
Silja Úlfarsd: pepp up
Sælgæti: lakkrís

 

Besti frjálsíþróttamaður/kona fyrr & síðar ?
Bob Beamon og Florence Griffith Joyner


Skemmtilegasta minningin úr frjálsum ?
Heimsmeistarmót unglinga í Tékklandi og Fyrsta landsliðsferðin (Evrópubikar í Slóvakíu)

Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Margar fyrirmyndir á mismunandi sviðum


Eitthvað að lokum?
Verið bjartsýn  Hugurinn ber okkur hálfa leið !!

 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að heilsusamlegt mataræði getur bætt líðan þína og útlit til muna