Fréttir
Ég er forvitinn endorfínfíkill!
Segir Gauti Ásbjörnsson skemmtilega í viðtali við frjálsar.net Gauti er öflugur stangastökkvari úr Tindastóli en það er reyndar ekki hans eina félag því hann er búsettur í Svíþjóð og æfir og keppir einnig fyrir Örgryte IS. Gauti sýnir landsmönnum því hér aðra hlið á sér..
Nafn & búseta:
Gauti Ásbjörnsson og ca 10 mánuði af árinu er ég í Gautaborg og hina 2 á króknum
Fæðingarstaður og ár:
Sauðárkrókur og ég er árgerð 85
Fjölskylduhagir:
Ég bý einn í skókassa... annars eru þau gömlu bara á króknum og syskini mín eru hér og þar.
Í hvaða félag ertu skráður ?
Tindastól og Örgryte IS
Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir ?
Allt hreinlega, þetta er upp til hópa kolklikkað lið sama hvert maður kemur.
Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu bestur í ?
Svarið við báðum spurningunum er nú stöngin en það er alltaf gaman að fíflast í hástökki og þrístökki svona af og til.
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar ?
Ég er forvitinn endorfínfíkill! og er alltaf að leita eftir því að prófa eitthvað nýtt og skora á sjálfan mig, þess á milli finnst mér helvíti fínt að slappa af.
Hvað er á döfinni hjá þér ?
Það sem er hvað næst eru nokkur leikmót hérna í Gautaborg, en það er alltaf síðustu mótin hjá okkur þá mætum við bara niðrá völl og það er allt frekar aflappað, fínt til að fá smá séns að bæta sig án þess að það skiptir miklu máli, annars er það bara hvíld í 2-4 vikur og skólinn.
Nú býrð þú í Svíþjóð, Hvað ertu að gera þar ?
Mest lítið þessa dagana er bara aðbíða eftir því að skólinn byrji, lauk nú í vor Bs í vélaverkfræði og nú tekur við Master í product development svo er maður bara að æfa eins og brjálæðingur, ekki mikill tími fyrir svefn.
Hvers vegna Svíþjóð ? Einhver tenging við frjálsar þar ?
Jájá alveg nóg, ég kynntist Pekka fyrst í gegnum Stangastökksnámskeið sem var á króknum 1997 þá var maður bara að byrja, svo kom ég í fyrsta skipti til Gautaborgar 2003 til að keppa á varldsungdomsspelen þá hitti ég hann aftur. Annars eru þeir helvíti duglegir í því að halda stórmót hérna, í hvaða íþrótt sem er tæknilega séð, eitt af þeim síðustu var EM í frjálsum 2006 svo ekki vantar tenginguna hér, mikill stuðningur frá samfélaginu.
Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/klúbbi ?
Já ég er að æfa hjá tveim frábærum þjálfurum, Pekka Dahlhjöd og Thomas Kyottila og þetta er stór og góður hópur sem ég er í, flestir eru í Örgryte líka en það er samt vel blandað þar sem allir stangastökkvarar stökkva allir saman en Örgryte hefur marga af bestu stökkvurum hér í Svíþjóð og ekki bara stöng heldur þrístökk, langstökki og hástökki líka.
Ef það er eitthvað sem þú gætir tekið með þér til Íslands frá Svíþjóð hvað yrði það ?
Svona 10 stk stangastökkvara, ekkert gaman að vera bara svona einn og einn að stökkva hér og þar, maður lærir mikið á því að horfa á aðra og einnig til að mynda smá keppni á æfingum, smá meting.
Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan ?
Engin! Maður ekki ekki að vera að velta sér upp úr því sem maður hefði getað gert betur eða hefði átt að gera. Það er allt í lagi að verða aðeins fúll en það er bara til að ná úr sér spennunni.
Þín æðsta ósk ?
Ég vona að maður eigi eftir að jafn gaman að þessu næstu árin og að ég geti skapað mér nægan tíma til að geta stökkið eins og vitleysingur
Framtíðin ? Hvað ber hún í skauti sér ?
Ekki hugmynd! Ég reyni að pæla sem minnst í því, það eina sem er næstum því víst er að ég verð allavega 2 ár hérna í Gautaborg til viðbótar að klára skólan. Eins og Lennon sagði svo vel "life is what happens when your busy making other plans"
Er eitthvað sem gæti farið betra í frjálsum á Íslandi ?
Stuðningur hjá minni félögum! Það eru bara eftir ca 7 klúbbar á Íslandi, það vantar drifkraftinn og einhvern til að ýta þessu áfram hjá minni félögunum.
Erum við á góðri leið með frjálsar á Íslandi í samanburð við Svíana ?
Já en það á nóg eftir að gera, það vantar stórar stjörnur heima í frjálsar, maður sér það hérna hvernig stuðningurinn í kringum frjálsarnar byggist í kringum þessa stóru og þennan stuðning dreifist niður á alla hina sem eru í sama klúbb eða sömu grein.
Helstu áhugamál ?
Ég hef nú síðustu tvö ár verið að byrja að djöflast á kite (Kraftdrekum) ég keypti í fyrra 8 fermetra dreka sem ég reyni að nota sem mest þegar ég er heima í jóla- og sumarfríi og það er hentugur vindur!
Uppáhalds:
Matur: gamla góða lambakjötið
Drykkur: powerade
Vefsíða: upp á síðkastið hefur það verið facebook og svo auðvitað frjalsar.net
Bók: er ekki mikið fyrir það að lesa en síðasta bókin sem ég las var foundation and empire eftir Isaac Asimov, alveg þokkaleg
Bíómynd/ir: þær eru nokkrar: Boondock Saints, Brotherhood of the wolf, Braindead og Donnie Darko svo eitthvað sé nefnt
Þættir: how I met your mother, Scrubs og CSI
Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór: að ég þarf að fara að kaupa mér nýja
Jón Arnar Magnússon: afhverju hann? Neinei Jón er snillingur, alltaf hress
Bikar: 2. deild næsta ár :(
Öldungar: Vantar meira af þeim heima á Íslandi á þessi minni mót, alltaf einhverjir gamlir að æfa/keppa hér í Gautaborg
Sælgæti: laugardagskvöld hihi
Formúla 1: hmmm Beini kaflinn við rásmarkið á Hockenheim keppninni nú í júlí 08, þar sem ég sat og horfði upp á það þegar Timo Glock skall í vegginn og rann einhverja 300m og stoppa beint fyrir framan okkur í klessu
Áttu þér einhverja fyrirmynd ?
Tim lobinger, hann er hyper sá gaur, keppir manna mest og æfir tæknilega séð ekkert undir keppnistímabilið, keyrir/flýgur á milli móta og keppir jafnvel á 3 mótum í viku. Mér finnst sjálfum mjög óþægilegt að missa úr keppnishelgi á byrjun keppnistímabilsins og í Júní keppti ég 8 sinnum og í það heila ætti ég að ná 15 keppnum í sumar.
Eitthvað að lokum?
Bara takk fyrir mig og við sjáumst næsta sumar!
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- að óhollt mataræði eykur hættuna á þunglyndi og skapsveiflum.