Fréttir
Frjálsíţróttafólk er sjálfstćtt og metnađarfullt
og ţar af leiđandi skemmtilegt í umgengni..... -Segir Íris Anna Skúladóttir í viđtali viđ frjalsar.net. Íris Anna er haldin til Danmerkur í nýtt og skemmtileg ćvintýri. Íris er eins og margir vita 3000m hindrunnarhlaupari. 1500m hlaupari og reyndar hleypur hún ýmsar vegalengdir sér og öđrum til mikillar skemmtunnar. Íris Anna er í Landsliđshópi Íslands og hefur veriđ ađ keppa mikiđ međ landsliđinu á erlendri grundi. Frjálsar.net ţótti tilvaliđ ađ fá viđtal viđ dömuna og forvitnast um komandi tíma
Nafn & búseta:
Íris Anna Skúladóttir og bý í Grafarvogi
Fæðingarstaður og ár:
30. ágúst 1989 á Landsspítalanum
Fjölskylduhagir:
Ég á móður,stúpföður og tvo yngri bræður þar, föður og einn yngri bróður þar og svo eina alsystur sem er tveimur árum eldri og jú svo á ég líka hund (papylon fiðrildahund)
Í hvaða félag ertu skráð?
Fjölni (UMFF)
Hvað er það sem heillar þig svona við frjálsar íþróttir?
Hvað þær eru ótrúlega fjölbreytilegar og skemmtilegar áhorfs. Þar geta flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þær byggjast á einstaklingsframtakinu að miklu leyti, sem þýðir að frjáslíþróttafólk er sjálfstætt og mettnaðarfullt og þannig fólk er skemmtilegt í umgengni Svo eru þær krefjandi og liðsandinn er góður.
Hvaða grein er í uppáhaldi hjá þér? Og hvaða grein ertu best í?
Ég myndi segja að þessa stundina væri 3000m hindrunarhlaup mín sterkasta grein en hún er mjög skemmtileg og í hálfgerðu uppáhaldi. Annars finnst mér 10km götuhlaup og 1500m hlaup mjög skemmtileg. Það er samt bara skemmtilegast að hlaupa það sem maður er í besta forminu fyrir hverju sinni. En mér finnst líka mjög skemmtilegt í þrístökki og hef keppt í því af og til í gengum tíðina ;)
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?
Hmm.. ég er mjög samviskusöm og svo er ég ágætis bakari ;)
Hvað er á döfunni hjá þér?
Ég fer til danmerkur 13. ágúst og þaðan fer ég 16. ágúst til Noregs að keppa á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í Bergen. Þar keppi ég í 2000m hindrun og 1500 en það er líklega síðasta mótið hjá mér í sumar
Nú ert þú á leið til Danaveldis, hvað á að fara að gera þar?
Ég er að fara í íþróttalýðháskóla ásamt þremur vinum mínum og við ætlum að æfa íþróttir allan daginn, kynnast skemmtilegu fólki, ferðast og æfa danska framburðinn
Hvers vegna Danmörk? Einhver tenging við frjálsar þar?
Það var nú bara vegnaþess að það kom kynning frá einum lýðháskóla í MH fyrr á árinu og mér þótti það seim hann hafði fram að færa mjög spennandi. Ég ætlaði reyndar út í háskóla til Bandaríkjanna í haust en svo gekk allt á afturfótunum hjá mér á innanhússtímabilinu að þjálfarinn í skólanum sem ég ætlaði í gat ekki veitt mér styrkinn svo ég ákvað að það væri ágætt fyrir mig að komast í aðra rútínu í smá tíma og fannst þetta tilvalið tækifæri. En annars engin sérstök tenging í frjálsar þar.
Ertu að æfa hjá góðum þjálfara/félagi?
Ég er já að æfa hjá góðum þjálfara og félagi núna en úti í Danmörku veit eg ekki allveg hvernig liðið er. Veit bara að það er völlur í 10 mínútna göngufæri frá skólanum auk þess sem skólinn er í skógi fullum af skemmtilegum hlaupaleiðum. Ég ætla bara að láta þetta ráðast þegar ég kem út.
Hver eru þín mestu vonbrigði innan vallar sem utan?
Utan vallar eru persónuleg en innan vallar væri það sú staða að meiðast þegar maður er nýbúinn að ná sér uppúr meiðslum, þannig að maður nær ekki að uppskera það sem maður hafði sáð. Annars man ég ekkert sérstakt í augnablikinu.
Þín æðsta ósk?
Að fjölskylda mín og vinir verði heilsuhraust sem lengst og að þeim líði alltaf vel
Framtíðin? Hvað ber hún í skauti sér?
Hún ber margt í skauti sér. Ef til vill munum við taka upp Evruna og heimsmarkaðsverð á olíu mun halda áfram að hækka.. en í minni nánustu framtíð sé ég bara fyrst frjálsar og nám og svo krakka og kökugerð þegar framlíða stundir
Er eitthvað sem gæti farið betra í frjálsum á Íslandi?
Já það er ýmislegt sem betur mætti fara. Mér finnst t.a.m. mikilvægt að efla starfið hjá þeim yngstu því þau eru jú framtíðin. Þarf ef til vill fleiri kraftmikla þjálfara til að lokka krakkana í frjálsar og svo halda þeim við efnið
Helstu áhugamál?
Hmm. Bara ferðalög, vera með vinum, eldamennska, íþróttir, fjölskyldan, spilamennska og fleira...
Uppáhalds:
Matur: Misjafnt. Núna er það steiktur skötuselur með sítrónupipar og hvítlaukssalti því ég fékk svoleiðis áðan og bragðið er ennþá í fersku minni
Drykkur: Fer eftir aðstæðum. Kristall+ er mjög oft í uppáhaldi og líka ískalt egils appelsín í gleri..
Vefsíða: www.hotmail.com og svo náttúrulega þessi
Bók: úff ég er ekki mikið í því að lesa bækur en Múnkurinn sem seldi sportbílinn sinn er mjög skemmtileg og styrkjandi svo hún fær mitt atkvæði
Bíómynd/ir: Sálfræði-spennutryllar og gamanmyndir
Þættir: Desperate Housewifes, Grey´s Anatomy og American Idol.
Hvað er það sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór: Vá hvað ég þarf að fara að endurnýja...
Jón Arnar Magnússon: Besti frjálsíþróttamaður sem Ísland hefur alið..
Bikar: Allir bikararnir mínir ;)
Öldungar: Sprækur gamall maður sem var á NM öldunga í höllinni í vetur.. ekki beint töff svar kannski en þetta var það sem mér datt fyrst í hug . .
Sælgæti: Tromp
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Já
Eitthvað að lokum?
Takk fyrir öfluga síðu.. Ekkert smágott framtak og mjög gaman að kíkja hingað því það er alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt að lesa. Takk fyrir mig!
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að ferskur sterkur pipar eykur brennsluna svo um munar