Fréttir
Lykillinn ađ árangri er ađ ćfa eins og brjálćđingur og muna ađ ţjálfarinn hefur alltaf rétt fyrir sér.
-Segir Ragnheiđur Anna Ţórsdóttir, Ragnheiđur er ein ţeirra sem hefur langt mikla stund á kastgreinar hjá Eggerti Bogasyni í Hafnarfirđi, verđur framtíđin björt hjá henni???? Gaman verđur ađ fylgjast međ henni í nánari framtíđ en frjalsar.net kynnir hér enn eina unga og efninlega frjálsíţróttakonu framtíđarinnar.
Nafn & Búseta:
Ragnheiður Anna Þórsdóttir, Hraunbraut í Kópavogi
Fæðingarár og staður:
14. apríl 1989 í Boston, Massachusetts, USA
Fjölskylduhagir:
Bý med mömmu, pabba, systur minni og hundinum mínum
Í hvaða félag ertu skráð og af hverju frjálsar ?
FH, ég er í frjálsum vegna þess að ég er svo léleg í hópíþróttum og mér líður eins og ég sé að drukkna í sundi.
Í hvaða grein ertu best og hvaða grein er uppáhaldið hjá þér?
Ég er best í kringlu og kringla er uppáhalds greinin mín. Reyndar er líka alltaf mjög gaman að horfa á boðhlaup.
Stærsti sigurinn - utan eða innan keppnisvallar ?
Þegar ég kastaði 50,18 m fyrir tveimur árum.
Mestu vonbrigðin ?
Þegar Helga Margrét tók goggametið mitt í langstökki
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest ?
Hvítu keppniskringluna mína (sem ég á reyndar ekki heldur FH) og fallega rauða bílinn minn, the Tim-Burton-mobile
Hverjir eru styrkleikar þínir ?
Ég kann að redda mér ef eitthvað fer úrskeiðis
Áhugamál:
Lesa góða bók, spila á píanó, salsa, köfun, siglingar og að sjálfsögðu frjálsar íþróttir
Finnst þér framtíðin björt fyrir frjálsar íþróttir á íslandi ?
já ég hugsa það
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir:
Gaddaskór? Gjörsamlega óþarfir
Öldungamót? Framtíðin
Jón Arnar Magnússon ? Skutlaði mér einu sinni heim í smart bílnum sínum
Bikar? Tekinn
Sælgæti? mmmmmm
Uppáhalds:
Matur: meyrt dádýrakjöt með villibráðasósu, pearlonions, brokkolí og kryddsteiktum kartöflum
drykkur: Sprite
vefsíða: facebook.com
bók: á mér ekki uppáhalds bók en uppáhalds höfundur er Terry Pratchett
bíómynd/ir: Indiana Jones myndirnar, Starwars og Lord of the Rings
Þættir: Gray's Anatomy, alla leið!
Ertu með snilldarþjálfara?
Að sjálfsögðu, Eggert Bogason
Hvað er framundan hjá þér?
Að jafna mig af bakmeiðslum og tognun á innralæri+
Áttu þér fyrirmynd?
Einhver lokarorð ?
Lykillinn að árangri er að æfa eins og brjálæðingur og muna að þjálfarinn hefur alltaf rétt fyrir sér.
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að ef hnéð á þér er aumt þar sem skelin mætir leggnum gæti það verið vísbending á vítamín-og steinefnaskort..