Fimmtudaginn 12. ágúst kl. 13.30
Fréttaritarar á Frjálsar.net
enginn
Auglýsi eftir fréttariturum/ pennum sem hafa mikinn áhuga á frjálsum íþróttum og eru til í að skrifa greinar og birta auglýsingar hér á vefnum.
Að sjálf sögðu er þetta allt sjálfboðavinna en getur orðið meira en það.
Ef þú hefur áhuga á að prufa þetta í einhvern tíma og að sjálfsögðu spjalla mikið um frjálsar íþróttir og hvað er að gerast í heimi frjálsra íþrótta endilega hafðu samband við mig í síma 659-7600 karen. ég verð svo í bandi við ykkur um fyrirkomulag á einn eða annan hátt.
kveðja
Karen Inga
Ritsjóri
til baka
Eldri
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 11.20
Frjálsíţróttablađiđ kemur út á morgun og verđur ţví dreift međ Morgunblađinu og fylgir međ í lausasölu líka.
Meðal efnis verður umfjöllum um þátttöku okkar á Evrópumeistaramótum fyrr og síðar, en yfirlit verður um árangur okkar fólks þar frá upphafi.
Meira
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 11.16
Um ţátttöku á Heimsmeistaramóti unglinga 19 ára og yngri í Moncton í Kanada
Fréttatilkynning
Þrír keppendur frá Íslandi taka þátt í Heimsmeistaramóti unglinga, 19 ára og yngri, í frjálsíþróttum sem haldið verður dagana 19. til 26. júlí nk. Mótið er haldið í borginni Moncton sem er í New Brunswick í Kanada.
Meira
Sunnudaginn 13. júní kl. 09.32
Kristín Birna búin ađ ná b-lágmarki inn á EM í frjálsum
ÍR-ingurinn Kristín Birna Ólafsdóttir bætti sig í 400 metra grindarhlaupi og náði B-lágmarki á Evrópumeistaramótið í Barcelona í sumar. Hún er þar með fyrsti íslendingurinn sem er kominn með lágmark á EM í frjálsum.
Meira
Laugardaginn 12. júní kl. 19.03
Blogg frá mótinu í Randers
Fyrri dagur búinn og okkar fólki gengur vel.
Mjög jafnt er í þraut í flestum aldursflokkum og þéttur pakki í toppsætunum.
Veður gengur á með skini og skúrum sem setur skemmtilgan svip á keppnina. Góður andi er í hópnum og allir heilir.
Þriðjudaginn 25. maí kl. 15.24
Ásdís Hjálms, Óđinn Björn og fleiri snilldar frjálsíţróttamenn og konur keppa í kvöld á Laugardalsvelli
- Innsend grein frá Frey Ólafssyni
Í kvöld klukkan 18:00 hefst JJ-mót Ármanns. JJ-mótið er eitt fyrst vormót frjálsíþróttamanna þetta vorið. Frjálsíþróttamenn eru nú margir spenntir að finna út hvernig þeir koma undan vetri.
Meira
Föstudaginn 21. maí kl. 22.19
Stefán Hallgrímsson í 3 sćti á HM 2010 í Kanada
Þessi árangur Stefáns er samkvæmt mínum upl.met í 60 ára flokki en hann átti sjálfur gamla metið sem var 3763 stig.
Meira
Föstudaginn 21. maí kl. 22.10
Góđur árangur hjá Óđni í Halle
Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarpari úr FH náði ágætis árangri á miklu kastmóti í Halle í Þýskalandi sem fram fór um síðustu helgi. Hann náði kasti upp á 18,78 m og varð í 8. sæti.
Meira
Föstudaginn 21. maí kl. 21.57
Góđur árangur hjá Ragnheiđi Önnu í kringluasti
Ragnheiður Anna Þórsdóttir úr FH sendi kringluna 49,48 m á kastmóti Í Kaplakrika, laugardaginn 15. maí sl. Þetta er hennar besti árangur í kringlukasti síðan 2006.
Meira
Föstudaginn 21. maí kl. 21.49
Stefanía međ sinn 3ja besta árangur í Mosvku
Stefanía Valdimarsdóttir hljóp á 58,09 sek á úttökumóti fyrir Ólympíuleika ungmenna sem hófst í Moskvu í dag.
Þetta er 3. besta hlaup Stefaníu, en best á hún 57,18 sek.
Föstudaginn 21. maí kl. 21.47
Dóróthea og Stefanía keppa í Moskvu í forkeppni vegna Ólympíuleika ungmenna um helgina
Dóróthea Jóhannesdóttir úr ÍR og Stefanía Valdimarsdóttir úr Breiðablik taka þátt í undankeppni frjálsíþrótta vegna Ólympíuleika ungmenna sem fram fara í Singapore í sumar. Undankeppnin verður haldin í Moskvu nú um helgina.
Meira
Föstudaginn 21. maí kl. 20.14
Góđ ţátttaka og stemning í 22. Fjölnishlaupinu á fimmtudag
Það var gott hlaupaveður - smá rigningarúði, en enginn vindur. Hlaupaleiðin liggur frá Fjölnisvellinum, meðfram Grafarvoginum, framhjá Bryggjuhverfinu að ósum Elliðaár og til baka aftur. Hlaupið er hluti af Poweradehlauparöðinni.
Meira
Senda inn efni eđa slóđ
Vissir ţú...
- Að sársaukafullur krampi í fótlegg merkir að kalkstaðan sé lág. Þig gæti líka skort magnesíum, þar sem þess er þörf til að kalkið nýtist beinum...
