Blogg

Þriðjudaginn 18. maí kl. 17.03

Pac-10 meistaramótiđ

enginn
-Kári Steinn bloggar
Pac-10 meistaramótiđ

Eitt snöggt blogg um hvernig gekk í dag. Hljóp taktískt 10km hlaup eins og við mátti búast á Pac-10 meistaramótinu sem fer fram hér í Berkeley. Hlaupið fór rólega af stað, ca 2:55 gegnum fyrsta km og síðan dó tempóið strax svolítið út. 8:55 í gegnum 3k, ca. 15:00 í gegnum 5k og 20:55 gegnum 7k. Síðan byrjaði hlaupið fyrir alvöru og ég náði að kreista út ca 8:35 síðustu 3km og lokatíminn 29:31 (3 sek frá mínum besta tíma) og 7. sæti og 2 stig fyrir liðið.

Ágætis hlaup. Leið mjög vel fyrstu 5km og fannst þetta algjört jogg. Var hins vegar alls ekki nógu harður síðustu 3km og átti nóg eftir á síðasta hring. En þetta var allavega góð æfing og fínt að fá eitt 10km hlaup í reynslubankann svona til að slípa sig aðeins til.
 
Næst á dagskrá eru 10km í Austin, Texas eftir 2 vikur. Verður örugglega skemmtileg heitt og mikill raki þar þannig að ég býst við erfiðu og taktísku hlaupi en það verður bara gaman að takast á við það. Segi þetta gott í bili.

til baka

Eldri Blogg

Þriðjudaginn 18. maí kl. 16.58

5000m á Brutus Hamilton

-Kári Steinn bloggar

Jæja, kominn tími til að hressa aðeins upp á þetta blogg. Hef lítið verið að gefa mér tíma í þetta blogg enda tók ég út smá stresskast í skólanum og mikið að gera í hlaupnum. Núna er hins vegar allt farið að róast aðeins aftur fyrir komandi lokaátök.

Meira
Þriðjudaginn 18. maí kl. 16.54

10 km ćfingar

-Kári Steinn bloggar

Trúi ekki að það sé komið svona langt síðan ég bloggaði síðast. Tíminn farinn að fljúga áfram enda nóg að gera. Kennslu á þessari önn er lokuð, upplestrarfríið var að klárast og prófatímabilið hefst á mánudaginn. Það eru sem betur fer enginn svaka læti í prófavikunni hjá mér þetta skiptið en ég fer í tvö próf og klára þann 13. maí. Ekki nema örfáir dagar í sumarfríið.

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.52

Big Meet

-Kári Steinn bloggar

Ég var rétt í þessu að klára að hlaupa 3.000m á Big Meet sem er keppni á milli Stanford og Berkeley. Langt frá því að vera frábært hlaup en ég náði engu að síður að kreista út litla bætingu en ég hljóp á 8:10,29 (átti 8:16 best úti en 8:10,97 best inni).

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.50

Tucson, Arizona

-Kári Steinn bloggar

Þá er utanhústímabilið komið vel af stað. Ég keppti í 1500m í Tucson, Arizona á laugardaginn og ég er ekki frá því að það hafi verið mesta ógeðishlaup sem ég hef hlaupið á mínum ferli. Ferðin í heild sinni var þó mjög góð og skemmtileg en hlaupið tók vel á.

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.48

Blogg ađ utan

-Helga Margrét og Guđrún Gróa blogga

Ég stend við stóru orðin og kem með eitt stykki lauflétt blogg héðan frá Tenerife.
 
Hér á Tenerife er veðrið ekkert til að hrópa húrra fyrir, fimm gráður á celcíus og norðan garri. Ekki hefur enn sést til sólar, en við bindum miklar vonir við að hún láti sjá sig seinna í dag. Við fáum ekkert gott að borða og morgunmaturinn sæmir varla svínum. Völlurinn og öll aðstaða í kringum æfingarnar er ekki ósvipuð Baldurshaganum á meðan hann hét og var......jæja Gógó, ertu ánægð núna? :P
Nei sem betur fer er þetta ekki svona, og í rauninni er þessu öllu alveg öfugt farið. Hér skín sólin glatt og hitinn gælir við 30°C, og það dag eftir dag. Hótelið og maturinn er tipp topp og ég var akkúrat að koma úr morgunmat þar sem ég sporðrenndi múslí með fullt af rúsínum, melónu og eggjahvítu. Gerist ekki mikið betra. Völlurinn er flottur og æfingar ganga vel. Æfingabúðirnar eru sumsé búnar að vera ansi hreint góðar hingað til og vonandi verður engin breyting á því.
 
Eitt veldur mér þó svolitlu hugarangri en það er sjúkdómsgreiningin sem ég hef hlotið af lyfjafræðingi ferðarinnar. Ásdís telur nefnilega nokkuð augljóst að ég sé haldin þeim skelfilega og bráðdrepandi sjúkdómi tanorexíu! :s Ég veit ekki alveg með þessa sjúkdómsgreiningu samt. Jú vissulega vil ég mikið liggja í sólinni og tana sem mest, en í rauninni þá tana ég bara ekki rassgat í bala heldur verð ég bara rauð og roðin. Í mínu tilviki ætti sjúkdómurinn því frekar að bera nafnið redorexía, roðarexía eða rjóðurexía. En eins og þið takið kannski eftir þá nefni ég ekki brunarexía, því ég stend mjög fast á því að ég sé ekki brunninn, þetta er allt spurning um hugarfar og því er ég bara rjóð og roðinn mun innan skamms vonandi breytast í fagurbrúnan húðlit :P En núna er ég búin að ligga í sólbaði fimm daga í röð og ætla því að hvíla mig frá sólinni í dag.
 
Hér á Tenerife er töluvert mikið af mishressu gömlum ellismellum. Það er mjög greinilegt að lífið getur farið svolítið misjafnlega í fólk. T.d. eru tveir gamlir karlar hérna á hótelinu alveg rosalega hressir. Þeir halda uppi stuðinu í borðtenniskeppnum í sundlaugagarðinum og þegar ég og Ásdís tókum sundlaugaræfingu um daginn vildu þeir endilega taka þátt líka, en gáfust þó fljótt upp blessaðir. En svo erum við líka með andstæðurnar og oftar en ekki eru það gömlu kerlingarnar sem bara geta ekki hamið í sér skapið. Alveg merkilegt hvað það er hægt að tuða mikið yfir því að smá sandur og sjór slettist á mann við það að nokkrir krakkar spretti framhjá þeim á ströndinni. Ég skil ekki alveg hvað þær eru að vilja í sundbolnum niður á strönd ef þær geta ekki þolað smá sand og sjó =o Eitt hef ég allaveganna lært, ég ætla frekar að vera svona hresst og skemmtilegt gamalmenni eins og spaðarnir í sundlaugagarðinum en ekki svona fúl og grömpí eins og gömlu konurnar í sundbolunum með rúllurnar í hárinu :P
 
En þangað til ég verð hresst gamalmenni ætla ég nú bara að einbeita mér að því að vera hress táningur. Þetta snýst allt um núið ekki satt?
 
En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili. Sýnist sólin vera að koma upp og æfing eftir spjótkastæfing eftir hálftíma. Svo er bara að sjá hvort að það verði jafn mikill hasar á þessari kastæfingu og þeirri síðustu :P
 
Ætla að enda þetta blogg á því að hvetja vinkonur mínar í KR til dáða. Gangi ykkur allt í haginn í kvöld, takið eina sókn í einu, eina vörn í einu, einn leik í einu og takið í leiðinni eitt skref í einu í átt að markmiðinu.
 
!!!KOMA SVO - ÁFRAM MEÐ SMJÖRIÐ - SETJA SMÁ KÆFU Í ÞETTA!!!
 
 

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.45

Aaaaalveg ađ koma!

-Kári Steinn bloggar

Þessar þrettán mínútur ætla að láta að bíða aðeins eftir sér en nálægt var það. Það er þó allavega óhætt að segja að þetta hafi verið betri byrjun á keppnistímabilinu en í fyrra. Ég hljóp sem sagt 5000m á Stanford Invitational í gær til að opna tímabilið hjá mér af alvöru. Ég hljópa kílómetrana 5 á 14:01,99 en í fyrra á sama móti hljóp ég 14:29 þannig að þetta er bara mjög jákvætt, nóg inni í bankanum.

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.41

Huggulegheit síđustu daga

-Kári Steinn bloggar

Spring break er búið að vera alveg frábært hingað til. Ég og Óli erum búnir að hafa það huggulegt og alveg þrælgott í 20-25 stiga hita og sól síðustu daga. Virkilega gott að vera laus við skóla í svolítinn tíma.

Meira
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 22.33

Tveggja daga blogg

-Helga Margrét og Guđrún Gróa blogga

Nú ætla ég að láta gamminn geisa um allt og ekki neitt næstu 10 mínúturnar eða þangað til klukkan slær 12 og þessi dagur syngur sitt síðasta. Mjög undarlegt ástand hér, og þreytt til að ná nokkru samhengi í annars mjög svo áhugaverðri lesningu um hljóðkerfi en samt of mikið axsjón í gangi í hausnum á mér til þess að far að sofa. Er þá nokkuð betra en að skjóta inn eins og einu litlu bloggi.
Það sem náttúrulega allra helst er að rétt í þessu, vorum við að vinna annan leikinn í undanúrslita rimmunni við Hauka og erum því komnar með tvo sigra á móti engum. Næsti leikur er svo á föstudaginn í DHL-höllinni. Ég treysti því náttúrulega að engin KR-ingur láti sig vanta þangað. Nema náttúrulega hún Helga sem ætlar að sting af til útlanda núna á hábjargræðistíma. Ég bara veit ekki hvað það á að fyrirstilla ???
 
 

Meira
Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11.05
-Ásdís Hjálms bloggar

Hvađ er ađ gerast hér....

Heyriði nú mig, endurlífgunartilraunirnar virðast eitthvað vera að skila árangri! Tvö blogg á þrem vikum er allavega meira en hægt var að segja í langan tíma á undan þó það teljist nú seint eitthvað afrek. Foot in mouth

Meira
Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11.02
- Blikar blogga

Stöng á Stórmóti ÍR

Sem þjálfari stangarstökkvara Blika þá hef ég þær góðu fréttir að blikar unnu alla þá flokka sem þeir kepptu í á Stórmóti ÍR um helgina... nema æðstistumpur sem stökk sömu hæð og vinnerinn ;/ En þetta var jákvætt hjá mér samt, sannfærandi 4.22 en náði mér ekki á strik á 4.32.

Meira
Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 10.58
- Kári Steinn bloggar

San Fran síđustu helgi

Jæja, kominn tími til að svara fréttaþorsta hinna fjölmörgu lesenda þessa bloggs. Mér þætti gaman að vita hvort það væru fleiri en Stebbi og Tobbi sem eru að lesa þessa vitleysu í mér.
 

Meira
 

Dagatal

meira
 
 

Senda inn efni eđa slóđ

 
 

Vissir ţú...

  • Að Jón Halldórsson var fyrsti íslendingurinn til að keppa á ÓL en hann keppti í 100m hlaupi í Stokkhólmi 1912.